Búslóðaflutningar
Samskip leggja kapp á að veita alhliða þjónustu vegna búslóðaflutninga hvort sem um er að ræða flutninga til eða frá Íslandi. Sé þess óskað, sjá Samskip um flutning frá dyrum sendanda að dyrum móttakanda hvar sem er í heiminum.
Samskip bjóða upp á flutning í heilum gámum í tveimur stærðum, 20 og 40 feta. Einnig taka Samskip að sér að flytja búslóðina lausa í gámi með öðrum vörum og afhenda lausa á áfangastað. Ætíð skal tryggja búslóðir og vanda til pökkunar á þeim.
Allar skrifstofur og umboðsmenn Samskipa veita frekari upplýsingar um búslóðaflutninga og mun starfsfólk Samskipa gera sitt besta til þess að auðvelda flutninginn.

