Bretland - Immingham
Samskip leggja áherslu á að veita góða alhliða þjónustu í búslóðarflutningum en margt þarf að hafa í huga þegar flytja á búslóð frá landinu.
1. Magn: Hversu mikið magn flytur þú með þér? Hér getur þú reiknað út rúmmál búslóðar. Athugaðu að ef rúmmálið reiknast 14 m3 eða meira er hagkvæmara að fá leigðan gám.
2. Tilboðsbeiðni: Til að fá verð í flutning þá þarf að fylla út tilboðsbeiðni. Mikilvægt er að fylla út í alla *merkta reiti sem og magn búslóðar sem á að flytja.
3. Skjöl sem þarf að fylla út áður en búslóð er flutt:
- Fylla þarf út bókunar- og innihaldslista en hann er fylltur út um leið og búslóð er pakkað. Mikilvægt er að merkja alla kassa með nafni móttakanda, heimilisfangi og símanúmeri. Mjög gott er að skoða innihaldslistann áður en byrjað er að pakka og nýta sér hann við merkingar. Athugaðu að listinn sé á ensku eða á tungumáli þess lands sem flytja á til. Bókunar- og innihaldslista skal skila til Samskipa í Reykjavík fyrir brottför. Á sama blaði er verðmætalisti fyrir tryggingar sem einnig þarf að fylla út.
- Fylla þarf út breska tollskýrslu.
- Skila þarf inn staðfestingu frá skóla um skólavist ef við á.
4. Panta flutning: Panta þarf allan flutning á skrifstofu Samskipa þjónustudeild í 458-8000
5. Skilatími:
| Skilatími fyrir flutning | FCL/Heilgámur | LCL/Lausavara |
| Samskip Kjalarvogi | Miðvikudagur 12:00* | Þriðjudagur 15:00 |
6. Greiðsla: Flutning þarf að greiða áður en Samskip flytur vöruna úr landi. Hægt er að greiða með símgreiðslu, raðgreiðslusamningi fyrir korthafa eða staðgreiðslu.
7. Koma skips: Búslóðareigandi ber ábyrgð á að fylgjast með komu skips og hafa samband við skrifstofu Samskipa. Eigandi búslóðar fær þá upplýsingar um lokaskrefin í flutningsferlinu.
Samskip Ltd.
Trondheim Way
Redwood Park Estate
Stallingborough
North East Lincolnshire
DN41 8TH
United Kingdom
Tel: +44 1469 567 000
8. Gámaleiga og geymslugjöld
Gámaleiga og geymslugjöld eru mismunandi eftir löndum og gefur viðkomuhöfn frekari upplýsingar um verðskrá þeirra.
Ef þú hefur frekari spurningar þá vinsamlegast sendu okkur fyrirspurn á customer.service@samskip.com hringdu í síma 458-8000
Heimasíðu Tollstjóraembættisins (búslóðir) er að finna hér, og er viðskiptavinum bent á að kynna sér hana vel.
Á vefsíðu tollayfirvalda í Bretlandi má finna frekari upplýsingar um flutning til Bretlands.

