Holland

Holland - Rotterdam

Samskip leggja áherslu á að veita góða alhliða þjónustu í búslóðarflutningum en margt þarf að hafa í huga þegar flytja á búslóð frá landinu.

1. Magn: Hversu mikið magn flytur þú með þér? Hér getur þú reiknað út rúmmál búslóðar. Athugaðu að ef rúmmálið reiknast 14 m3 eða meira er hagkvæmara að fá leigðan gám.

2. Tilboðsbeiðni: Til að fá verð í flutning þá þarf að fylla út tilboðsbeiðniMikilvægt er að fylla út í alla *merkta reiti sem og magn búslóðar sem á að flytja.

3. Skjöl sem þarf að fylla út áður en búslóð er flutt:  

  • Fylla þarf út bókunar- og innihaldslista en hann er fylltur út um leið og búslóð er pakkað. Mikilvægt er að merkja alla kassa með nafni móttakanda, heimilisfangi og símanúmeri. Mjög gott er að skoða innihaldslistann áður en byrjað er að pakka og nýta sér hann við merkingar. Athugaðu að listinn sé á ensku eða á tungumáli þess lands sem flytja á til. Bókunar- og innihaldslista skal skila til Samskipa í Reykjavík fyrir brottför. Á sama blaði er verðmætalisti fyrir tryggingar sem einnig þarf að fylla út.
  • Skila þarf inn staðfestingu frá skóla um skólavist ef við á.
  •  Skila þarf einnig inn búsetuvottorði frá þjóðskrá á ensku.

  • Húsaleigusamningi eða hótelskráningu.
  • Sækja um undanþágu (vergunning / belastingvrij/ persoonlijke goederen) til tollayfirvalda um að flytja inn búslóð án þess að greiða tollagjöld.
  • Fylla út agreement/authorisation to act as direct representative import and export.


4. Panta flutning: Panta þarf allan flutning á skrifstofu Samskipa þjónustudeild í 458-8000


5. Skilatími:

Skilatími fyrir flutning FCL/Heilgámur LCL/Lausavara
Samskip Kjalarvogi Miðvikudagur 12:00* Þriðjudagur 15:00

 

6. Greiðsla: Flutning þarf að greiða áður en Samskip flytur vöruna úr landi. Hægt er að greiða með símgreiðslu, raðgreiðslusamningi fyrir korthafa eða staðgreiðslu. 


7.  Koma skips: Búslóðareigandi ber ábyrgð á að fylgjast með komu skips og hafa samband við skrifstofu Samskipa. Eigandi búslóðar fær þá upplýsingar um lokaskrefin í flutningsferlinu. 

Rotterdam
Waalhaven Oostzijde 81
3087 BM Rotterdam
The Netherlands
Tel: +31 88 400 1000

Þegar komið er til Hollands:

Byrja verður á að sækja um dvalarleyfi (Woonvergunning).

  • Sótt er um dvalarleyfi á bæjarskrifsofu (Stadhuis) á þeim stað sem verið er að flytja til og skila þarf inn neðangreindum gögnum:
    - Sýna gilt vegabréf sem gildir a.m.k. mánuði lengur (helst 3 mánuðum lengur) en áætlaður dvalartími í Holland.
      
    - 2 litmyndir 3x4cm af hverjum einstaklingi. Passamyndir skulu hafa ljósan bakgrunn.
  • Eftirfarandi gögnum verður að skila til tollayfirvalda:
  • Dvalarleyfi í Hollandi (ef það er ekki tilbúið þá verður að fá sérstaka staðfestingu frá viðkomandi bæjarskrifstofu um að dvalarleyfi sé í vinnslu).
  • Vegabréf (tollurinn tekur ljósrit).
  • Ljósrit af bókunar- og innihaldslista sem fylltur var út fyrir flutninginn.

Þessum gögnum verður að skila inn til tollskrifstofu á viðkomandi stað og getur afgreiðsla tekið allt að 2-3 vikur. Tollafgreiðsla á búslóðum og bílum er alltaf á ábyrgð eiganda flutnings. 

Þegar heimild hefur borist frá tollayfirvöldum þarf að senda frumritið til Samskipa í viðkomandi landi. Samskip senda það til endanlegrar tollafgreiðslu.

8. Gámaleiga og geymslugjöld
Gámaleiga og geymslugjöld eru mismunandi eftir löndum og gefur viðkomuhöfn frekari upplýsingar um verðskrá þeirra.

Ef þú hefur frekari spurningar þá vinsamlegast sendu okkur fyrirspurn á customer.service@samskip.com  hringdu í síma 458-8000 

Heimasíðu Tollstjóraembættisins (búslóðir) er að finna hér, og er viðskiptavinum bent á að kynna sér hana vel.

 





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica