Noregur

Noregur

Samskip leggja áherslu á að veita góða alhliða þjónustu í búslóðarflutningum en margt þarf að hafa í huga þegar flytja á búslóð frá landinu.

1. Magn: Hversu mikið magn flytur þú með þér? Hér getur þú reiknað út rúmmál búslóðar. Athugaðu að ef rúmmálið reiknast 14 m3 eða meira er hagkvæmara að fá leigðan gám.

2. Tilboðsbeiðni: Til að fá verð í flutning þá þarf að fylla út tilboðsbeiðniMikilvægt er að fylla út í alla *merkta reiti sem og magn búslóðar sem á að flytja.

3. Skjöl sem þarf að fylla út áður en búslóð er flutt:  

  • Fylla þarf út bókunar- og innihaldslista en hann er fylltur út um leið og búslóð er pakkað. Mikilvægt er að merkja alla kassa með nafni móttakanda, heimilisfangi og símanúmeri. Mjög gott er að skoða innihaldslistann áður en byrjað er að pakka og nýta sér hann við merkingar. Athugaðu að listinn sé á ensku eða á tungumáli þess lands sem flytja á til. Bókunar- og innihaldslista skal skila til Samskipa í Reykjavík fyrir brottför. Á sama blaði er verðmætalisti fyrir tryggingar sem einnig þarf að fylla út. Innihaldslistinn má ekki vera handskrifaður.

Á bókunar- og innihaldslista þarf að koma fram:

  • Nákvæmt heimilisfang í Noregi ásamt símanúmeri.
  • Norsk kennitala (Ef ekki er búið að sækja um norska kennitölu, þarf að afhenda afrit af ökuskírteini eða vegabréfi). Hafi norsk kennitala ekki borist heimila norsk tollayfirvöld ekki afgreiðslu á búslóðinni til viðtakanda í Noregi.

Fylla þarf út norska tollskýrslu. Móttakandi búslóðar í Noregi þarf að skrifa undir tollskýrslu. Ef móttakandi getur ekki. af einhverjum ástæðum, skrifað undir, þá er ábyrgðaraðila búslóðar heimilt að skrifa undir fyrir hönd móttakanda.


4. Panta flutning: Panta þarf allan flutning á skrifstofu Samskipa þjónustudeild í 458-8000


5. Skilatími:

Skilatími fyrir flutning FCL/Heilgámur LCL/Lausavara
Samskip Kjalarvogi Miðvikudagur 12:00* Þriðjudagur 15:00

 

6. Greiðsla: Flutning þarf að greiða áður en Samskip flytur vöruna úr landi. Hægt er að greiða með símgreiðslu, raðgreiðslusamningi fyrir korthafa eða staðgreiðslu. 


7.  Koma skips: Búslóðareigandi ber ábyrgð á að fylgjast með komu skips og hafa samband við skrifstofu Samskipa. Eigandi búslóðar fær þá upplýsingar um lokaskrefin í flutningsferlinu. 

 Moss
Samskip AS
Moss Maritime Senter
Strandgaten 10
1531 Moss
Norway
Tel: +47 69 24 96 15

8. Gámaleiga og geymslugjöld
Gámaleiga og geymslugjöld eru mismunandi eftir löndum og gefur viðkomuhöfn frekari upplýsingar um verðskrá þeirra.

Ef þú hefur frekari spurningar þá vinsamlegast sendu okkur fyrirspurn á customer.service@samskip.com  hringdu í síma 458-8000 

Heimasíðu Tollstjóraembættisins (búslóðir) er að finna hér, og er viðskiptavinum bent á að kynna sér hana vel.

Þar sem að flutningar Samskipa til Noregs hafa breyst þá vinsamlegast vertu í sambandi við Þjónustudeild Samskipa í síma 458-8000 eða fylltu út tilboðsbeiðni til að fá verð í flutning.





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica