Önnur lönd
Flutningur til annarra landa
Samskip hvetja búslóðaflytjendur til að undirbúa sig vel fyrir flutning og fylla út nauðsynleg skjöl áður en búslóð er afhent til Samskipa.
Búslóð -eyðublöð
Fylla þarf út bókunar- og innihaldslista, en hann er fylltur út um leið og búslóð er pakkað. Mikilvægt er að merkja alla kassa með nafni móttakanda, heimilisfangi og símanúmeri. Mjög gott er að skoða innihaldslistann áður en byrjað er að pakka og nýta sér hann við merkingar. Athugaðu að listinn sé á ensku eða á tungumáli þess lands sem flytja á til. Bókunar- og innihaldslista skal skila til Samskipa í Reykjavík fyrir brottför.
Samskip mæla með að eftirfarandi gögn séu útveguð og sé skilað til tollskrifstofu á viðkomandi stað.
- Búsetuvottorð frá Hagstofu Íslands um búsetu á Íslandi sl. 6 mánuði á ensku
- Flutningstilkynning frá Hagstofu Íslands á ensku
- Dvalarleyfi í viðkomandi landi
- Staðfesting á heimilisfangi/leigusamningur
- Staðfesting frá vinnustað/skóla um starf/nám í viðkomandi landi
- Ljósrit af vegabréfi
Þessum gögnum verður að skila inn til tollskrifstofu á viðkomandi stað. Staðfestingu frá tollayfirvöldum þarf að senda eða afhenda viðkomandi flutningsaðila eða tengiliði Samskipa í viðkomandi landi.
Tollafgreiðsla
Tollafgreiða þarf búslóðina inn í viðkomandi land á þar tilgerðu eyðublaði. Eigandi búslóðar ber alltaf ábyrgð á og þarf ávallt að sjá um tollafgreiðslu á búslóð sinni áður en hún er afgreidd frá Samskipum eða afgreiðsluaðila í erlendri höfn.
Vinsamlega athugið að kynna ykkur vel tollareglur vegna flutninga á búslóðum og bifreiðum til annarra landa. Mismunandi reglur gilda og ýmis tollagjöld geta verið innheimt. Þessi atriði eru ekki á ábyrgð Samskipa.
Tryggingar
Ábyrgð farmflytjanda í flutningum er takmörkuð. Samskip hvetja alla til að tryggja búslóð sína. Óski sendandi eftir tryggingu er hægt að fylla út tryggingarbeiðni rafrænt eða á bókunar- og innihaldslista.
Samskip bjóða aðstoð við viðskiptavini við að tryggja hjá Sjóvá.
Við gerum þá kröfu að farmflytjandi tryggi búslóð fyrir flutning.
Búslóðir:
- Iðgjald er 0,75% af uppgefnu andvirði búslóðar með 25.000 kr. Sjálfsábyrgð.
- Lágmarks iðgjald er 3.000 kr.
Óskir þú eftir tilboði í flutning á búslóð eða bifreið þá vinsamlegast fylltu út tilboðsbeiðni
Greiðslumöguleikar
Samskip á Íslandi bjóða upp á VISA eða MasterCard raðgreiðslur til allt að 36 mánaða fyrir þá sem þess óska. Ekki er mögulegt að ganga frá raðgreiðslum erlendis.
Ýmis tollaembætti
| Australia Austria Belgium Croatia Czech Republic Estonia Finland France Germany Hungary Iceland |
Ireland Italy Latvia Luxemburg New Zealand Poland Russian Federation Spain Sweden United Kingdom |

