Svíþjóð

Svíþjóð

Samskip leggja áherslu á að veita góða alhliða þjónustu í búslóðarflutningum en margt þarf að hafa í huga þegar flytja á búslóð frá landinu.

1. Magn: Hversu mikið magn flytur þú með þér? Hér getur þú reiknað út rúmmál búslóðar. Athugaðu að ef rúmmálið reiknast 14 m3 eða meira er hagkvæmara að fá leigðan gám.

2. Tilboðsbeiðni: Til að fá verð í flutning þá þarf að fylla út tilboðsbeiðniMikilvægt er að fylla út í alla *merkta reiti sem og magn búslóðar sem á að flytja.

3. Skjöl sem þarf að fylla út áður en búslóð er flutt:  

Fyrst þarf að sækja um sænska kennitölu.

  • Sótt er um sænska kennitölu á bæjarskrifstofu (Skatteverket) á þeim stað sem verið er að flytja til.
  • Nánari upplýsingar má finna á vef : http://www.skatteverket.se/folkbokforing/ovrigt/flyttain.4.18e1b10334ebe8bc80002966.html
  • Afgreiðsla tollayfirvalda í Svíþjóð er aldrei heimiluð nema sænsk kennitala eða umsókn um hana liggi fyrir
  • Fylla þarf út bókunar- og innihaldslista en hann er fylltur út um leið og búslóð er pakkað. Mikilvægt er að merkja alla kassa með nafni móttakanda, heimilisfangi og símanúmeri. Mjög gott er að skoða innihaldslistann áður en byrjað er að pakka og nýta sér hann við merkingar. Athugaðu að listinn sé á ensku eða á tungumáli þess lands sem flytja á til. Bókunar- og innihaldslista skal skila til Samskipa í Reykjavík fyrir brottför. Á sama blaði er verðmætalisti fyrir tryggingar sem einnig þarf að fylla út.
  • Á bókunar- og innihaldslista þarf að koma fram:
    • Nákvæmt heimilisfang í Svíþjóð ásamt símanúmeri.
    • Sænsk kennitala (Ef ekki er búið að sækja um sænska kennitölu, þarf að afhenda afrit af ökuskírteini eða vegabréfi)

    Fylla þarf út sænska tollskýrslu. Móttakandi búslóðar í Svíþjóð þarf að skrifa undir tollskýrslu. Ef móttakandi getur ekki, af einhverjum ástæðum. skrifað undir, þá er ábyrgðaraðila heimilt að skrifa undir fyrir hönd móttakanda.

 

4. Panta flutning: Panta þarf allan flutning á skrifstofu Samskipa þjónustudeild í 458-8000.

 

5. Skilatími:

Skilatími fyrir flutning FCL/Heilgámur LCL/Lausavara
Samskip Kjalarvogi Miðvikudagur 12:00* Þriðjudagur 15:00

 

6. Greiðsla: Flutning þarf að greiða áður en Samskip flytur vöruna úr landi. Hægt er að greiða með símgreiðslu, raðgreiðslusamningi fyrir korthafa eða staðgreiðslu. 


7.  Koma skips: Búslóðareigandi ber ábyrgð á að fylgjast með komu skips og hafa samband við skrifstofu Samskipa. Eigandi búslóðar fær þá upplýsingar um lokaskrefin í flutningsferlinu. 

Samskip AB
Hamnomraadet
P.O. Box 161
432 24 Varberg
Tel: +46 340 64 66 60

 

8. Gámaleiga og geymslugjöld
Gámaleiga og geymslugjöld eru mismunandi eftir löndum og gefur viðkomuhöfn frekari upplýsingar um verðskrá þeirra.

Ef þú hefur frekari spurningar þá vinsamlegast sendu okkur fyrirspurn á customer.service@samskip.com  hringdu í síma 458-8000 

Heimasíðu Tollstjóraembættisins (búslóðir) er að finna hér, og er viðskiptavinum bent á að kynna sér hana vel. 


 





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica