Þýskaland
Samskip leggja áherslu á að veita góða alhliða þjónustu í búslóðarflutningum en margt þarf að hafa í huga þegar flytja á búslóð frá landinu.
1. Magn: Hversu mikið magn flytur þú með þér? Hér getur þú reiknað út rúmmál búslóðar. Athugaðu að ef rúmmálið reiknast 14 m3 eða meira er hagkvæmara að fá leigðan gám.
2. Tilboðsbeiðni: Til að fá verð í flutning þá þarf að fylla út tilboðsbeiðni. Mikilvægt er að fylla út í alla *merkta reiti sem og magn búslóðar sem á að flytja.
3. Skjöl sem þarf að fylla út áður en búslóð er flutt:
- Fylla þarf út bókunar- og innihaldslista en hann er fylltur út um leið og búslóð er pakkað. Mikilvægt er að merkja alla kassa með nafni móttakanda, heimilisfangi og símanúmeri. Mjög gott er að skoða innihaldslistann áður en byrjað er að pakka og nýta sér hann við merkingar. Athugaðu að listinn sé á ensku eða á tungumáli þess lands sem flytja á til. Bókunar- og innihaldslista skal skila til Samskipa í Reykjavík fyrir brottför. Á sama blaði er verðmætalisti fyrir tryggingar sem einnig þarf að fylla út. Innihaldslistinn má ekki vera handskrifaður.
- Afriti af íslensku vegabréfi
- Afriti af húsaleigusamningi
- Staðfestingu frá vinnuveitanda um vinnu/staðfestingu um skólavist frá skóla
Hafa þarf í huga áður en flutt er til Þýskalands:
Sækja þarf um dvalarleyfi áður en gengið er frá flutningi til Þýskalands.
Sótt er um dvalarleyfi á bæjarskrifstofu á þeim stað sem flytja á til og skila þarf inn neðangreindum gögnum:
- Vegabréfi
- Húsaleigusamningi eða hótelskráningu
- Staðfestingu frá vinnustað eða skóla um starf eða skólavist
Eftirfarandi gögnum verður að skila til tollayfirvalda í Þýskalandi:
- Dvalarleyfi í Þýskalandi (ef það er ekki komið í tilbúið verður að fá sérstaka staðfestingu frá viðkomandi bæjarskrifstofu um að dvalarleyfi sé í vinnslu)
- Ljósrit af vegabréfi
- Bókunar- og innihaldslista (ekki handskrifaðan)
- Staðfestingu frá vinnustað eða skóla um starf eða skólavist
Þessum gögnum verður að skila inn til tollskrifstofu á viðkomandi stað og tekur afgreiðsla minnst 24 tíma. Tollafgreiðsla á er alltaf á ábyrgð eiganda flutnings.
Þegar heimild hefur borist frá tollayfirvöldum og allur kostnaður hefur verið gerður upp við Samskip getur eigandi búslóðar vitjað hennar eða fengið hana senda til sín, með því að hafa samband við Samskip í Þýskalandi.
Athugið að tafir geta orðið á afgreiðslu búslóðar í Þýskalandi ef ekki er sótt um dvalarleyfi áður en flutningur á sér stað.
4. Panta flutning: Panta þarf allan flutning á skrifstofu Samskipa þjónustudeild í 458-8000
5. Skilatími:
| Skilatími fyrir flutning | FCL/Heilgámur | LCL/Lausavara |
| Samskip Kjalarvogi | Miðvikudagur 12:00* | Þriðjudagur 15:00 |
6. Greiðsla: Flutning þarf að greiða áður en Samskip flytur vöruna úr landi. Hægt er að greiða með símgreiðslu, raðgreiðslusamningi fyrir korthafa eða staðgreiðslu.
7. Koma skips: Búslóðareigandi ber ábyrgð á að fylgjast með komu skips og hafa samband við skrifstofu Samskipa. Eigandi búslóðar fær þá upplýsingar um lokaskrefin í flutningsferlinu.
Samskip GmbH
Flughafenallee 15
D-28199 Bremen
Germany
Tel: +49 421 3047 0
8. Gámaleiga og geymslugjöld
Gámaleiga og geymslugjöld eru mismunandi eftir löndum og gefur viðkomuhöfn frekari upplýsingar um verðskrá þeirra.
Ef þú hefur frekari spurningar þá vinsamlegast sendu okkur fyrirspurn á customer.service@samskip.com hringdu í síma 458-8000
Heimasíðu Tollstjóraembættisins (búslóðir) er að finna hér, og er viðskiptavinum bent á að kynna sér hana vel.
Heimasíða sem veitir frekari upplýsingar um flutning til Þýskalands:

