USA

USA

Samskip hvetja búslóðaflytjendur til að undirbúa sig vel fyrir flutning og fylla út nauðsynleg skjöl áður en búslóð er afhent til Samskipa.

Vinsamlegast athugið að Samskip flytja ekki lausavöru til Bandaríkjanna.


Búslóð -e
yðublöð

Fylla þarf út bókunar- og innihaldslista, en hann er fylltur út um leið og búslóð er pakkað. Mikilvægt er að merkja alla kassa með nafni móttakanda, heimilisfangi og símanúmeri. Mjög gott er að skoða innihaldslistann áður en byrjað er að pakka og nýta sér hann við merkingar. Athugaðu að listinn sé á ensku eða á tungumáli þess lands sem flytja á til. Bókunar- og innihaldslista skal skila til Samskipa í Reykjavík fyrir brottför.

Fylla þarf út tollskýrslur:


Tryggingar

Ábyrgð farmflytjanda í flutningum er takmörkuð. Samskip hvetja alla til að tryggja búslóð sína. Óski sendandi eftir tryggingu er hægt að fylla út tryggingarbeiðni rafrænt eða á bókunar- og innihaldslista.

Samskip bjóða aðstoð við viðskiptavini við að tryggja hjá Sjóvá.

Við gerum þá kröfu að farmflytjandi tryggi búslóð fyrir flutning.

Búslóðir:

  • Iðgjald er 0,75% af uppgefnu andvirði búslóðar með 25.000 kr. Sjálfsábyrgð.
  • Lágmarks iðgjald er 3.000 kr.

Óskir þú eftir tilboði í flutning á búslóð eða bifreið þá vinsamlegast fylltu út tilboðsbeiðni.



Bifreiðir

Ekki er heimilt að flytja búslóð eða búslóðahluta inn í bifreið. Athugið að bifreið og búslóð þarf því að flytja í tvennu lagi. Mikilvægt er að hafa bifreiðina tryggða í flutningum.

Fyrir brottför þarf að afhenda eftirfarandi gögn til Samskipa í Reykjavík:

  • Afrit af skráningarskírteini bifreiðar.
  • Afrit af alþjóðlegu tryggingarskírteini (græna kortið). Mikilvægt er að frumrit skírteinis sé í höndum þess aðila sem móttekur bifreiðina í erlendri höfn.
  • Afrit af vegabréfi eða ökuskírteini.


Greiðslumöguleikar

Samskip á Íslandi bjóða upp á VISA eða MasterCard raðgreiðslur til allt að 36 mánaða fyrir þá sem þess óska. Ekki er mögulegt að ganga frá raðgreiðslum erlendis.

Heimasíður sem veita frekari upplýsingar um flutning til Bandaríkjanna:

Tollurinn í USA

Reglur um innflutning til USA





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica