Holland

Holland - Rotterdam

Samskip leggja áherslu á að veita góða alhliða þjónustu í búslóðarflutningum en margt þarf að hafa í huga þegar flytja á búslóð til landsins. 

1. Magn:  Hversu mikið magn flytur þú með þér? Hér getur þú reiknað út rúmmál búslóðar. Þar er hægt að fá viðmiðunartölu fyrir stærð búslóðar til að nota í tilboðsbeiðni.  Ef þessi tala er hærri en 14 m3 þá er oftast hagkvæmara að taka gám.

2. Tilboðsbeiðni: Til að fá verð í flutning þá þarf að fylla út tilboðsbeiðni. Mikilvægt er að fylla út í alla *merkta reiti sem og magn búslóðar sem á að flytja.

3. Skjöl sem þarf að fylla út áður en búslóð er flutt: Bókunar og innihaldslisti, er fylltur út um leið og búslóð er pakkað.  Á sama blaði er verðmætalisti fyrir tryggingar sem einnig þarf að fylla út. Samskip gera þá kröfu að farmflytjandi (sendandi) láti tryggja búslóð fyrir flutning. Flestir hafa heimilistryggingu á eigum sínum og er því jafn sjálfsagt að tryggja þær við flutning í bílum og skipum um heiminn. Starfsfólk Samskipa gefur allar upplýsingar um tryggingaskilmála og aðstoðar við kaup á tryggingum.

  • Fylla út agreement/authorisation to act as direct representative import and export.



4. Panta flutning: Panta þarf allan flutning með minnst þriggja daga fyrirvara.  

Samskip
Waalhaven Oostzijde 81
3087 BM Rotterdam
Tel: +31 88 400 1000


5. Skilatími:

Skilatími í flutning FCL/Heilgámur LCL/Lausavara
Rotterdam Mánudagur 22:00 Mánudagur 14:00

 

6. Koma skips og tollun: Búslóðareigandi ber ábyrgð á að fylgjast með komu skips og tollun. Áður en búslóð fæst afhent þarf eigandi eða umboðsaðili eiganda að fylla út yfirlýsingu vegna innflutnings á búslóð og skila henni til Jóna Transport . Búslóð verður að vera skráð á þann aðila sem er að flytja til landsins (ekki er leyfilegt að skrá búslóð á fyrirtæki í flutningi til landsins).

7. Greiðsla: Flutning þarf að greiða áður en Samskip afhendir vöruna. Hægt er að greiða með símgreiðslu, raðgreiðslusamningi fyrir korthafa eða staðgreiðslu.

8. Gámaleiga og geymslugjöld:
Heilgámar: Sjö dögum eftir komudag skips reiknast gáma og stæðaleiga.

Lausavara: Sjö dögum eftir komudag skips reiknast geymslugjöld.

 

Ef þú hefur frekari spurningar þá vinsamlegast sendu okkur fyrirspurn á customer.service@samskip.com eða hringdu í síma 458-8000

Heimasíðu Tollstjóraembættisins (búslóðir) er að finna hér, og er viðskiptavinum bent á að kynna sér hana vel.

 





 





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica