Leiðbeiningar vegna búslóðaflutninga

Leiðbeiningar vegna búslóðaflutninga


Svo búslóðin komist alla leið heim til þín, þarft þú að huga að eftirfarandi atriðum:

Tollafgreiðsla

Tollafgreiða þarf búslóðina inn í landið og til þess þarf að framvísa komutilkynningu og innihaldslista yfir það sem er í sendingunni og fylla út eyðublað sem nefnist yfirlýsing vegna innflutnings á búslóð. Þetta þarf að  gera í samráði við tollara og bendum við á Jónar Transport, verð á tollskýrslu er samkvæmt gjaldskrá þeirra.

Þegar leyfi hefur fengist hjá tollayfirvöldum getur þú gengið frá greiðslu hjá gjaldkera Samskipa við Kjalarvog.

Hvenær er búslóðin tilbúin til afhendingar?

Búslóð sem tekur heilan gám á að vera tilbúin til afgreiðslu sólarhring eftir komu skips. Ef búslóðin tekur hluta úr gám þá á hún að vera tilbúin fyrir kl. 16.00 á föstudegi. Komudagsetningu má sjá í sendingarnúmeri á tilkynningu. Dæmi: S ARN 06089 DE CUX W002, þá kemur skipið 6. ágúst 2009.

Greiðsla flutningsgjalda

Samskip bjóða upp á VISA eða EUROCARD raðgreiðslur fyrir korthafa sem þess óska.  

Flutningur heim að dyrum

Samskip bjóða upp á heimakstur á búslóðinni og gefur gjaldkeri upplýsingar um verð á þeirri þjónustu. Ef búslóðin er í heilum gámi kjósa flestir að fá gáminn heim að dyrum og er hann þá skilinn þar eftir. Þegar búið er að tæma hann þarf að tilkynna það til þjónustudeildar í síma 458 8000 og gámurinn verður sóttur við fyrsta tækifæri.

Geymsla á búslóðinni er gjaldfrjáls fyrstu 7 dagana eftir komu skips og gildir það einu hvort búslóðin kom í lausu eða heilgám. Eftir það er rukkað samkvæmt gjaldskrá Samskipa.

Þjónustudeild veitir nánari upplýsingar í síma 458 8000.

Með kærri kveðju og von um að heimkoman verði þér og fjölskyldu þinni ánægjuleg.

Starfsfólk Samskipa





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica