Tollfrjálsar búslóðir
Úr reglugerð nr. 797/2000, um undanþágu aðflutningsgjalda í ýmsum tilvikum.
Búferlaflutningar
3. gr.
Heimilismunir manna sem flytja búferlum hingað til lands skulu undanþegnir aðflutningsgjöldum að uppfylltum neðangreindum skilyrðum:
1. Viðkomandi hafi átt lögheimili og haft fasta búsetu erlendis a.m.k. tólf síðustu mánuði áður en hann flytur til landsins.
2. Um sé að ræða notaða heimilismuni sem hafi verið í eigu hans í a.m.k. eitt ár. Þó mega heimilismunir sem viðkomandi hefur átt í skemmri tíma vera að heildarverðmæti allt að 100.000 kr. að smásöluverði á innkaupsstað án nokkurs frádráttar á sköttum vegna útflutnings. Fjárhæð þessi gildir fyrir hvern fjölskyldumeðlim sautján ára og eldri en helmingi lægri fjárhæð fyrir þá sem yngri eru. Við ákvörðun verðmætis einstakra hluta skal leggja til grundvallar reikninga og kvittanir þar sem verð hluta er tilgreint. Séu slík gögn ekki tiltæk skal miðað við smásöluverð sams konar eða svipaðra hluta í verslun hér á landi.
3. Viðkomandi hafi muni þessa með sér er hann flytur búferlum eða flytji þá innan sex mánaða frá því hann tók sér bólfestu hér á landi eða öðlast hér lögheimili. Tollstjóri getur þó veitt undanþágu frá þessu ákvæði ef sérstaklega stendur á, svo sem ef dvöl manns hér hefur upphaflega verið ákveðin einungis til skemmri tíma en framlengist síðan til varanlegrar búsetu.
4. Við tollafgreiðslu munanna gefi innflytjandi skriflega skýrslu, í því formi sem ríkistollstjóri ákveður, um að skilyrðum skv. 1.-3. tölul. sé fullnægt og munirnir séu fluttir inn eingöngu til nota á heimili hans hérlendis.
Tollstarfsmenn geta krafist skilríkja um þau atriði sem um ræðir í 1. mgr., búsetuheimild innflytjanda hér á landi, fjölskyldu hans, atvinnu og annað sem máli skiptir.
Eftirfarandi vörur teljast ekki til heimilismuna í skilningi þessarar greinar:
- Búnaður, vélar eða tæki sem innflytjandi flytur með sér og notaður er við atvinnurekstur hans eða fjölskyldu hans.
- Vélknúin ökutæki, svo sem bifreiðar, bifhjól, beltabifhjól, vélbátar, flugvélar og farartæki eins og seglbátar, svifflugur, svifdrekar o. þ. h.
- Áfengi og tóbak.
Nánari upplýsingar á vefsíðu tollsins www.tollur.is

