Afhending vöru

Afhending vöru - Innanlandsdeild

Alhliða þjónusta

Landflutningar - Samskip bjóða upp á búslóðaflutninga innanlands. Allir flutningar fara fram landleiðina með fullkomnum bílaflota fyrirtækisins. Boðið er upp á flutninga frá dyrum sendanda að dyrum móttakanda hvar á landinu sem er.

Umfang búslóðar

Boðið er upp á flutning í heilum gámum í tveimur stærðum, 20 ft og 40 ft. Einnig taka Landflutningar - Samskip að sér að flytja búslóðina lausa í flutningabílum. Þegar þannig er flutt er ávalt meiri hætta á hnjaski þar sem hvert stykki er meðhöndlað oftar en ef um gámaflutning er að ræða. Rétt er að miða pökkun og frágang við það.

Flutningur/Pökkun

Í öllum tilfellum er nauðsynlegt að ganga mjög vel frá búslóðinni. Pakka sem mestu í kassa og setja pappa eða þykkt plast utan um húsgögn og tæki. Á stærri hlutum þarf að hlífa öllum hornum. Ef búslóð er flutt laus í flutningabílum þá þarf að merkja alla hluti vandlega.

Tryggingar

Við ráðleggjum öllum að tryggja búslóðina fyrir flutning. Flestir hafa heimilistryggingu á munum sínum og því jafn eðlilegt að tryggja þegar búslóðin er í flutningi milli áfangastaða. Sölufulltrúar okkar geta aðstoðað við kaup á tryggingum.

Bókun flutnings

Þegar flutningur er pantaður þarf að gefa upp brottfarar- og áfangastað og hvort um flutning í heilum gámum eða lausu er að ræða. Einnig hvort óskað er eftir því að búslóðin sé sótt og hvort óskað er eftir heimakstir á áfangastað. Ef pantaður er flutningur í lausu þá þarf að liggja fyrir umfang (rúmmál) búslóðarinnar.

Flutningsgjöld

Verðlagning búslóðaflutninga er mjög mismunandi eftir því hvaðan og hvert er verið að flytja. Einnig fer hún eftir því hvort um gáma- eða lausaflutninga er að ræða. Vinsamlega hafið samband við sölufulltrúa okkar og fáið uppgefin verð í flutningana.

Hægt er að greiða flutningsgjald áður en flutningur á sér stað eða fyrir afhendingu á móttökustað. Mögulegt er að semja um greiðslukjör á Visa/Euro raðgreiðslum.

Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica