Búslóðaflutningur til Íslands

Samskip leggja áherslu á að veita góða alhliða þjónustu í búslóðaflutningum en margt þarf að hafa í huga þegar flytja á búslóð til landsins.

Tilboð

Til að fá verð í flutning þá þarf að fylla út tilboðsbeiðni. 

Magn

Hversu mikið magn flytur þú með þér? Hér getur þú reiknað út rúmmál búslóðar. Þar er hægt að fá viðmiðunartölu fyrir stærð búslóðar til að nota í tilboðsbeiðni.  Ef þessi tala er hærri en 16 m3 þá er oftast hagkvæmara að taka gám.

Innihaldslisti

Bókunar og innihaldslisti er fylltur út um leið og búslóð er pakkað.  Á sama blaði er verðmætalisti fyrir tryggingar sem einnig þarf að fylla út. Samskip gera þá kröfu að farmflytjandi (sendandi) láti tryggja búslóð fyrir flutning. Flestir hafa heimilistryggingu á eigum sínum og er því jafn sjálfsagt að tryggja þær við flutning í bílum og skipum um heiminn. Starfsfólk Samskipa gefur allar upplýsingar um tryggingaskilmála og aðstoðar við kaup á tryggingum.

Panta flutning

Panta þarf allan flutning með minnst þriggja daga fyrirvara og er það gert á næstu skrifstofu Samskipa.

Skilatími

Skilatími er mismunandi eftir höfnum. Sjá skilatíma hér.

Koma skips og tollafgreiðsla

Búslóðareigandi ber ábyrgð á að fylgjast með komu skips og tollafgreiðslu. Búslóð verður að vera skráð á þann aðila sem er að flytja til landsins (ekki er leyfilegt að skrá búslóð á fyrirtæki í flutningi til landsins). Áður en búslóð fæst afhent þarf eigandi eða umboðsaðili eiganda að láta tollafgreiða búslóðina og er það gert hjá Jónum Transport, dótturfyrirtæki Samskipa.  Eftirtöldum gögnum þarf að skila til tolladeildar Jóna Transport svo tollafgreiðsla geti farið fram. 

Greiðsla

Flutning þarf að greiða áður en Samskip afhenda vöruna. Hægt er að greiða með símgreiðslu, raðgreiðslusamningi fyrir korthafa eða staðgreiðslu.

Heimakstur

Samskip bjóða upp á heimakstur, þegar flutningsgjöld hafa verið greidd og tollafgreiðsla hefur farið fram.  Vinsamlegast athugið að akstur sem pantaður er fyrir hádegi er afgreiddur samdægurs en akstur sem pantaður er eftir hádegi, er afgreiddur næsta dag.

Gámaleiga og geymslugjöld

Heilgámar: Fjórtán dögum eftir komudag skips reiknast gáma- og stæðaleiga.

Lausavara: Fjórtán dögum eftir komudag skips reiknast geymslugjöld.

Skoða gjaldskrá fyrir gámaleigu og geymslugjöld.

Ef þú hefur frekari spurningar þá vinsamlegast sendu okkur fyrirspurn á buslodir@samskip.com eða hringdu í síma 458 8000.

Viðskiptavinum er bent á að kynna sér vel vef Tollstjóraembættisins (búslóðir) er að finna hér.

Hér að ofan er hægt að sjá kynningarmyndband um það ferli sem maður þarf að fara í gegnum skref fyrir skref hvernig búslóð er flutt til Íslands.

Námsmenn erlendis

Námsmenn njóta 15% afsláttar af sjóflutningi hjá Samskipum, innan Evrópu. Upplýsingar um verð og flutningsleiðir er að hægt að nálgast hjá þjónustudeild.