- Innflutningur
Innflutningur
Samskip bjóða innflytjendum heildarlausnir í flutningum og öflugt flutningakerfi Samskipa er afar góður kostur fyrir þá sem ætla flytja vörur til landsins.
Þéttriðið net samstarfsaðila Samskipa tekur við vörunni við dyr sendanda og flytur hana til áætlunarhafna Samskipa í veg fyrir áætlunarskip félagsins sem flytja vöruna til Íslands. Samskip aka vörunni svo að dyrum viðtakanda sé þess óskað.
Söludeild innflutnings sérhæfir sig í þjónustu viðskiptavina í samninga - og tilboðsgerð og veitir ráðgjöf um allt er viðkemur flutningum.
Þjónustudeild veitir góða og persónulega þjónustu og sér til þess að rétt gögn, upplýsingar og vara berist viðskiptavinum á réttum tíma.
Til að óska eftir heimsendingu á vörum, vinsamlegast hafið band við þjónustudeild í síma 458 8000 eða sendið tölvupóst á customer.service@samskip.com
