Innflutningsferli bíla frá USA

Innflutningsferli bíla frá Bandaríkjunum (USA)


Margir gámar staflaðir upp.Samskip veita heildarþjónustu við flutninga á bílum frá Bandaríkjunum til Íslands, í því felst:

  1. Að sækja bíl til seljanda í Bandaríkjunum (forflutningur innanlands)
  2. Móttaka, bókanir og geymsla í höfn þar til bíll kemst í skip
  3. Tollafgreiðsla, skjalaumsýsla og samskipti við tollayfirvöld í Bandaríkjunum
  4. Lestun, sjóbúnaður, tryggingar og reglur í flutningi
  5. Sjóflutningur Norfolk-Reykjavík
  6. Uppskipun og afgreiðsla í Reykjavík

Áherslupunktar:

1. Sækja bíl til seljanda í Bandaríkjunum (Forflutningur innanlands)

  • Eftirfarandi upplýsingar eru nauðsynlegar þegar beiðni um að sækja bíl er lögð fram:
  • Nafn seljanda/sendanda í USA og móttakanda á Íslandi, heimilisfang seljanda/sendanda(þar sem sækja á bílinn) og símanúmer ásamt heimilisfangi móttakanda á Íslandi.
  • Upplýsingar um tegund, árgerð, framleiðslunúmer (VIN number) og ástand ökutækis eru einnig nauðsynlegar.
  • Ef seljandi sér um að koma bílnum til hafnar á ofangreindur texti ekki við, heldur er það á ábyrgð sendanda að setja sig í samband við skrifstofu Samskipa í Norfolk til að bóka bílinn og segja til um hvenær eigi að skila bílnum í vöruhús, hver sé sendandinn og móttakandi ásamt öðrum upplýsingum um bílinn.
  • Að sækja bíl tekur mislangan tíma í USA, það fer allt eftir staðsetningu hans.

2. Móttaka, bókanir og geymsla í höfn

  • Móttaka bíla fer eingöngu fram í vöruhúsi Samskipa í Norfolk (sjá heimilisfang í flutningsfyrirmælum) og þarf bókun að liggja fyrir áður en móttaka fer fram.
  • Bíllinn er geymdur í vöruhúsi þar til hann er lestaður, sjóbúinn í gám og hífður um borð í skip.

3. Tollafgreiðsla, skjalaumsýsla og samskipti við tollayfirvöld

  • Tollafgreiðsla er skilyrði þess að bíllinn sé lestaður í gám og sér skrifstofa Samskipa um þá afgreiðslu. Hún tekur að jafnaði 2-3 daga.
  • Nauðsynlegir pappírar fyrir tollafgreiðslu eru: Bill of sale (afsal) og Original Title (skráningarskírteini)
  • Sendandi/seljandi er ábyrgur fyrir því að upprunalegir pappírar (ekki afrit) berist skrifstofu Samskipa í tæka tíð.

4. Lestun, sjóbúnaður, tryggingar og reglur í flutningi

  • Samskip flytja bíla sem hægt er að lesta í hefðbundna gáma (velflestir bílar til almennra nota, nema helst allra stærstu tegundir pallbíla og húsbíla) og getum einnig boðið upp á flutning á stærri bílum og tækjum. 
  • Bílarnir eru keyrðir inn í gáma, tveir bílar í hvern 40 feta gám, þeir beislaðir niður með sérstökum bílaströppum og síðan hífðir um borð í skip.
  • Bensíntankur má ekki innihalda meira en sem nemur 1/8 hluta af honum. Ef bílar berast með meira magn þarf að tappa af þeim og kostar sú þjónusta USD 200.
  • Farmflytjandi ber ekki ábyrgð á því að bíllinn sé tryggður í flutningi og bjóða tryggingafélög upp á einfaldar tryggingar. Samskip geta einnig haft milligöngu um tryggingar óski viðskiptavinir þess.

5. Sjóflutningur Norfolk-Reykjavík

  • Samskip bjóða upp á mánaðarlegar útskipanir frá Norfolk.
  • Sjóflutningur frá því að skip leggur úr höfn í Norfolk þar til það leggst að bryggju í Reykjavík tekur að jafnaði 10 daga en tekur þó mið af veðri og vindum.

6. Uppskipun og afgreiðsla á Íslandi

  • Sækja þarf um fastanúmer fyrir ökutæki hjá Umferðarstofu. Til þess þarf að fá farmbréf hjá Samskipum og fara með það og skráningarskírteinið (original title) af bílnum til Umferðarstofu. Athugið að afrit af skráningarskírteini gildir ekki.
  • Þegar Umferðarstofa hefur gefið út fastanúmer þá er tollskýrsla gerð og veita Jónar Transport slíka þjónustu. Til tollafgreiðslu þarf að koma með reikning fyrir ökutækinu, fastanúmerið frá Umferðarstofu og komutilkynningu sem er gefin út hjá Samskipum. Ath. að nokkra daga getur tekið fyrir tollayfirvöld að skoða ökutækið og tollafgreiða það. Öll notuð ökutæki þurfa að fara í vöruskoðun.
  • Þegar tollheimild er fengin, eru aðflutningsgjöld greidd, annað hvort hjá Tollstjóra eða í Landsbankanum Holtagörðum, flutningsgjöld greidd hjá Samskipum. Þá er hægt að fá ökutækið afhent og skal farið með það í skoðun á skoðunarstöð. Bent er á að hægt er að fá leigð rauð númer hjá skoðunarstöðvum svo ekki þurfi að keyra ökutækið númerslaust.
  • Ökutæki eiga að vera tilbúin til afgreiðslu hjá Samskipum ekki seinna en kl. 14 á föstudögum. Athygli skal vakin á að settir eru 5 lítrar af eldsneyti á ökutæki við komu til Íslands.




Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica