Þjónustustaðlar innflutningsdeildar
Þjónustustaðlar Samskipa eru til þess að upplýsa viðskiptavini um hvers þeir mega vænta um þjónustu Samskipa. Allar þjónustubeiðnir fara í gegnum þjónustudeild og/eða þjónustuvef Samskipa.
Afgreiðslutími
Almennur afgreiðslutími hjá Samskipum er frá kl. 8.00 til kl. 16.30 alla virka daga.
Þjónustustaðlar millilandaflutninga
- Almenn losun skal vera tilbúin kl. 08.00 á föstudögum.
- Heilgámar (FCL-gámar) skulu vera tilbúnir til afhendingar kl. 12.00 á fimmtudögum.
Flýtilosunarbeiðnir þurfa að berast 18 klst fyrir komu skips. Gjald er tekið fyrir flýtilosun. Flýtilosun skal vera tilbúin kl. 12.00 á fimmtudögum.
Þjónustustaðlar akstursþjónustu innflutnings
Samskip bjóða upp á akstur á gámum og lausavöru að dyrum viðskiptavina. Ef akstur er pantaður fyrir hádegi er pöntunin afgreidd samdægurs. Ef akstur er pantaður eftir hádegi er pöntunin afgreidd fyrir hádegi næsta dag. Gjald er tekið fyrir akstur. Tómir gámar eru sóttir til viðskiptavina innan þriggja daga eftir að beiðni berst.
Beiðni um akstursþjónustu
Vinsamlegast sendið beiðnir í gegnum þjónustuvef Samskipa eða sendið tölvupóst á customer.service (hjá) samskip.com.
Þjónustuvefur Samskipa
Með þjónustuvef Samskipa viljum við gefa viðskiptavinum innflutningsdeildar tækifæri á að nálgast upplýsingar og óska eftir þjónustu, þegar þeim hentar.
Á Þjónustvefnum geta viðskiptavinir rakið sendingar, prentað út komutilkynningar og farmbréf. Einnig er hægt að panta heimakstur og flýtilosun, óska eftir aðstoð við tollafgreiðslu og senda inn beiðni um breytingu á komutilkynningu. Þá má leita að gámum, láta sækja tóman gám og skoða stöðu gáma viðskiptavina. Með þjónustuvefnum vilja Samskip auka þjónustuna og þekkingarsambandið við viðskiptavini.
Vinsamlegast kynnið ykkur samning um þjónustuvef og sækið um aðgang að þjónustuvef.

