Vefsetur - notkunarskilmálar
Notandi vefseturs Samskipa er bundinn af ákvæðum skilmála þessara. Til notkunar telst m.a. skoðun, upplýsingaöflun og/eða nýting á þeirri þjónustu sem í boði er á vefsetri félagsins á hverjum tíma.
Öll notkun vefsetursins takmarkast við þær aðgerðir sem eðlilegar og löglegar geta talist og þær upplýsingar og þjónustu sem félagið býður fram á hverjum tíma.
Notanda er óheimilt að tengja vefsetrið við önnur vefsetur með hlekkjum með neinum hætti í heild eða hluta án skriflegs leyfis Samskipa. Notanda er jafnframt óheimilt að nota vefsetrið og/eða hugbúnað til annars en skýrlega er kveðið á um í texta á vefsetrinu.
Samskip bera ekki ábyrgð á þeim vefsetrum sem unnt er tengjast í gegnum vefsetur Samskipa og bera jafnframt ekki ábyrgð á þeim vefsetrum öðrum sem veita aðgang að vefsetri Samskipa.
2. gr. Upplýsingar á vefsetri - takmörkun ábyrgðar
Samskip geta á hverjum tíma breytt efni því og upplýsingum sem fram koma á vefsetri án nokkurs fyrirvara. Samskip geta einnig rofið aðgang notanda að vefsetrinu á hverjum tíma án nokkurs fyrirvara eða tilkynninga t.d. vegna viðgerða, bilana, uppfærslu vefsetursins og/eða annarra þarfra aðgerða að mati Samskipa á hverjum tíma. Bera Samskip ekki ábyrgð á hugsanlegu tjóni sem notandi kann að verða fyrir vegna þessa.
Samskip beina því til notanda að sannreyna þær upplýsingar sem fram koma á vefsetri á hverjum tíma hafi hann í hyggju að nýta þær með einhverjum hætti þar sem í upplýsingum kunna að leynast villur eða þær orðnar úreltar, þrátt fyrir að Samskip leitist að sjálfsögðu við að hafa allar upplýsingar ávallt réttar og tæmandi. Er notanda bent á að hafa samband við skrifstofu Samskipa þar sem starfsfólk mun taka vel á móti öllum fyrirspurnum og veita nánari upplýsingar um starfsemi og þjónustu sem Samskip veita á hverjum tíma.
Öll notkun efnis og upplýsinga af vefsetri Samskipa er ávallt alfarið á ábyrgð notanda og bera Samskip ekki bótaábyrgð á því tjóni sem kann að verða vegna notkunar t.d. vegna þess að upplýsingar hafi reynst rangar og/eða ekki tæmandi um efni eða jafnvel að notandi hafi ekki getað nýtt sér aðgang að vefsetri.
Samskip bera jafnframt ekki ábyrgð á tjóni sem notandi kann að verða fyrir vegna vanþekkingar notanda, misskilnings, misnotkunar á vefsetri eða vegna þess að tölvubúnaðar notanda virkar ekki sem skyldi.
Samskip bera einungis skaðabótaábyrgð á beinu tjóni notanda vefsetursins samkvæmt almennum reglum skaðabótaréttar vegna ásetnings eða stórfellds gáleysis félagsins eða starfsmanna þess, með þeim undantekningum sem fram koma í skilmálum þessum.
Bætur vegna beins tjóns sem notandi kann að verða fyrir vegna notkunar á vefsetri félagsins takmarkast við SDR 7.500 vegna hvers tjóns eða fleiri tjóna ef orsök þeirra er sú sama. Reikna skal SDR til íslensks gjaldeyris eftir gengi þess dags er greiðsla fer fram.
Allt efni á vefsetri er háð höfundarrétti Samskipa og er notkun þess óheimil án skriflegs leyfis Samskipa þ.m.t. notkun vörumerkja, þjónustumerkja og/eða viðskiptaheita félagsins.
5. gr. Nýting upplýsinga frá notanda
Notandi veitir Samskipum heimild til þess að nýta þær upplýsingar/fyrirspurnir sem hann sendir á vefsetrið án nokkurs endurgjalds enda sé skráning og/eða notkun þeirra eðlilegur þáttur í starfsemi félagsins.
Um vefsetur þetta og skilmála gilda íslensk lög. Samskip ábyrgjast þannig ekki notkun vefsetursins utan íslenskrar lögsögu. Rísi mál út af skilmálum þessum eða vefsetrinu skal reka þau fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Notandi sem fer inn á vefsetur Samskipa, skoðar, aflar sér upplýsinga og/eða nýtir sér þjónustu þar í boði er bundinn af skilmálum þessum.

