Útflutningur
Samskip bjóða útflytjendum heildarlausnir í flutningum. Öflugt flutningakerfi Samskipa er góður kostur fyrir þá sem vilja koma vöru á markað erlendis. Samskip taka á móti vöru við dyr sendanda á Íslandi og skila að dyrum móttakanda erlendis.
Landflutningar-Samskip flytja útflutningsvörur í veg fyrir millilandaskip sem sigla vikulega til hafna í Evrópu og Bandaríkjunum. Þéttriðið net samstarfsfyrirtækja Samskipa tekur svo við og flytur vöruna frá aðalhöfnum félagsins erlendis á áfangastað hvar sem er í veröldinni.
Söludeild útflutnings sérhæfir sig í þjónustu viðskiptavina í samninga - og tilboðsgerð og veitir ráðgjöf um allt er viðkemur flutningum.
Þjónustudeild veitir góða og persónulega þjónustu og sér til þess að rétt gögn, upplýsingar og vara berist viðskiptavinum okkar á réttum tíma.
Ef óskað er eftir að vara sé sótt skal senda tölvupóst á customerserviceexport@samskip.is
Öll flutningfyrirmæli þurfa að berast Samskipum á netfangið booking@samskip.com samkvæmt þjónustustöðlum Samskipa.

