Þjónustustaðlar útflutningsdeildar

Þjónustustaðlar Samskipa eru til þess að upplýsa viðskiptavini um hvers þeir mega vænta um þjónustu Samskipa. Allar þjónustubeiðnir fara í gegnum þjónustudeild og/eða þjónustuvef Samskipa.
Útflutningur frá Reykjavík
Afhending á vörum/gámum til útflutnings með Arnarfelli og Helgafelli frá Reykjavík
- LCL vara (almenn lausavara) skal berast í síðasta lagi fyrir kl. 12.00 á hádegi á miðvikudögum.
- LCL vara (búslóðir) skulu berast í síðasta lagi fyrir kl. 16.00 á þriðjudögum.
- FCL gámar skulu berast í síðasta lagi fyrir kl. 17.00 á miðvikudögum.
- FCL ferskfiskgámar skulu berast í síðasta lagi fyrir kl. 19.00 á fimmtudögum.
Athugið - undantekningar eru gerðar á ferskum fiski, ef samráð er haft við viðskiptastjóra. - Bókanir- og flutningsfyrirmæli fyrir heilgáma skulu berast áður en vara er afhent Samskipum, en eigi síðar en kl. 12.00 á hádegi á miðvikudögum.
Ef skip er fullt er gámum forgangsraðað eftir bókunartíma.
Vörur fluttar með Landflutningum-Samskipum
Vörur sem flytja á með Landflutningum-Samskipum í veg fyrir millilandaskip Samskipa, þurfa að berast Landflutningum á brottfararstað eigi síðar en kl. 09.00 á þriðjudögum.
Akstursþjónusta útflutnings
Samskip bjóða upp á akstursþjónustu fyrir útflutningsvöru. Akstur er framkvæmdur degi eftir að beiðni berst. Gjald er tekið fyrir akstur. Tómir gámar eru sendir til viðskiptavina innan þriggja daga eftir að beiðni berst.
Beiðni um akstursþjónustu:
Vinsamlegast sendið beiðnir í gegnum þjónustuvef Samskipa eða sendið tölvupóst á customer.service@samskip.com
Útflutningur frá Vestmannaeyjum
Afhending á vörum/gámum til útflutnings með Arnarfelli og Helgafelli frá Vestmannaeyjum
- LCL vara (almenn lausavara) skal berast í síðasta lagi fyrir kl. 12.00 á hádegi á fimmtudögum.
- LCL vara (búslóðir) skulu berast í síðasta lagi fyrir kl. 12.00 á hádegi á fimmtudögum.
- FCL gámar skulu berast í síðasta lagi fyrir kl. 12.00 á föstudögum.
- FCL ferskfiskgámar skulu berast í síðasta lagi fyrir kl. 12.00 á föstudögum.
Athugið - undantekningar eru gerðar á ferskum fiski, ef samráð er haft við viðskiptastjóra. - Bókunar- og flutningsfyrirmæli skulu berast áður en vara er afhent Samskipum, en eigi síðar en kl. 12.00 á hádegi á fimmtudögum.
Vörur fluttar með Landflutningum-Samskipum
Vörur sem flytja á með Landflutningum-Samskipum í veg fyrir millilandaskip Samskipa, þurfa að berast Landflutningum á brottfararstað eigi síðar en kl. 09.00 á þriðjudögum.
Útflutningur frá Reyðarfirði
Afhending á vörum/gámum til útflutnings með Hvassafelli frá Reyðarfirði
- LCL vara (almenn lausavara) skal berast í síðasta lagi sólarhring fyrir brottför skips.
- LCL vara (búslóðir) skulu berast í síðasta lagi sólarhring fyrir brottför skips.
- FCL gámar skulu berast í síðasta lagi sólarhring fyrir brottför skips.
- FCL ferskfiskgámar skulu berast í síðasta lagi sólarhring fyrir brottför skips.
Athugið - undantekningar eru gerðar á ferskum fiski, ef samráð er haft við viðskiptastjóra. - Bókunar- og flutningsfyrirmæli skulu berast áður en vara er afhent Samskipum, en eigi síðar en sólarhring fyrir brottför skips.
Vörur fluttar með Landflutningum-Samskipum
Vörur sem flytja á með Landflutningum-Samskipum í veg fyrir millilandaskip Samskipa, þurfa að berast Landflutningum á brottfararstað eigi síðar en kl. 09.00 á þriðjudögum.

