Togaralandanir
Öll þjónusta á einum stað.
Samskip bjóða alhliða þjónustu við fjölveiðiskip og frystitogara. Löndun, flutningar og geymsla - allt er á einum stað, auk tengdrar þjónustu. Lögð er áhersla á hraða, sveigjanleika og fagleg vinnubrögð. Aðstaðan er öll hin ákjósanlegasta, hægt er að vinna við 3 togara á Vogabakka samtímis auk tveggja á Holtabakka. Viðlegukanturinn er 500 metrar og innsiglingin er 8,5 metrar á dýpt.
Afgirt vaktað svæði
Frystimiðstöðin er í sömu hæð og bryggjan svo hægt er að landa beint inn í hana. Flokkun afla fer fram í færanlegu lokuðu löndunarrými.
Aðstaða er til sýnatöku og skoðunar í miðstöðinni.
Nánari upplýsingar veitir Óskar Gíslason, útflutningsdeild, oskarg@samskip.is

