Tómum gámum skilað

Afhending á tómum gámum til Samskipa frá viðskiptavini

Margir gámar staflaðir upp.

-Þegar viðskiptavinur skilar gámum til Samskipa eiga þeir að vera tómir og hreinir.

-Allir gámar verða skoðaðir af bílstjórum Samskipa þegar þeir verða sóttir.

-Gámar sem ekki eru tómir verða ekki teknir og kostnaður vegna aukaaksturs leggst á viðskiptavin.

-"Open Top" gámum á að skila til Samskipa með segli og sperrum uppsettum.

-Frystigámar eiga að vera með tengisnúru uppgerða og gengið frá henni í þar til gerða geymslu á frystivél.

-Aðgengi að gámum skal vera fullnægjandi.

-Ef tjón verður á gámum Samskipa í vörslu viðskiptavinar, og/eða búnaði tengdum þeim, ber að tilkynna slíkt til Flutningastjórnunardeild Samskipa í síma 458 8488 eða 458 8602 eða með tölvupósti cdr@samskip.com.





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica