- Vörumiðstöð

Vörumiðstöð

– almenn vöruhýsing & tollvörugeymsla

Aðkoma að Vörumiðstöð Samskipa við KjalarvogVörumiðstöð Samskipa er alhliða þjónusta á sviði vöruhýsingar og vörumeðhöndlunar. Starfsemin byggir á áralangri reynslu og þekkingu, en Samskip hófu árið 1993 að bjóða uppá þessa þjónustu. Í fyrstu eingöngu með almennri vöruhýsingu en frá því í byrjun árs 1996 hefur tollvörugeymsla einnig verið hluti af starfseminni. Umfang þjónustunnar hefur þanist út ár frá ári og þjónar Vörumiðstöðin nú fjölbreyttum hópi stórra og smárra viðskiptavina.

Í Vörumiðstöð Samskipa vinnur starfsfólk með mikla reynslu og fagþekkingu þar sem fylgt er skýrum og metnaðarfullum þjónustustöðlum. Unnið er eftir GÁMES-gæðakerfi (HACCP) sem tekur á þrifum, merkingum, hitastigsmælingum, meindýravörnum og innra eftirliti.

Þjónustustaðlar fyrir vörumiðstöðina

Pantanir
Pantanir sem berast milli kl. 08:00 og 12:00, eru afhentar milli 08:00 og 12:00 næsta dag. Pantanir sem berast milli 12:00 og 17:00, eru afhentar milli 12:00 og 17:00 næsta dag. Þjónustustaðall afhendingar miðast við þessar tímasetningar.

Flýtigjald
Ef óskað er eftir flýtimeðferð við afgreiðslu pantana þannig að fyrirvari er ekki innan þeirra marka sem þjónustustaðlar kveða á um reiknast 50% álag sem lagt er á við gjaldtöku viðkomandi þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Hrafnkelsson.





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica