Geymsla á vélsleðum og vélhjólum
Þar sem vetur er nú genginn í garð þurfa eigendur vélhjóla að koma hjólum sínum í geymslu yfir vetrartímann. Bæði vélhjóla- og vélsleðaeigendur kannast við að erfitt getur reynst að finna heppilegt geymslupláss fyrir vélhjólið eða vélsleðann.
Nú býður vörumiðstöð Samskipa geymslupláss fyrir vélhjól og vélsleða í upphituðu og vöktuðu húsnæði. Greiður aðgangur er að geymsluhúsnæðinu og því er hægt að sækja hjólið eða sleðann með skömmum fyrirvara alla daga vikunnar.
Ástandsskýrsla er útbúin í hvert sinn sem tækið er móttekið til geymslu auk þess sem teknar eru myndir af því. Einnig er eldsneyti tæmt af eldsneytistanki tækisins áður en því er komið fyrir í geymslunni og því þarf að tryggja að lítið eldsneyti sé á tankinum þegar komið er með það til geymslu.
Geymsluplássið kostar kr. 1.980 á mánuði og kostnaður við að taka hjólið eða sleðann úr geymslu kostar kr. 1.250 á virkum dögum en kr. 4.000 um helgar. Gerður er samningur um geymsluna.
Hafðu samband í síma 458 8000 eða sendu tölvupóst á vorumidstod@samskip.com til að bóka geymslu og fá nánari upplýsingar.
Vörumiðstöðin er opin virka daga frá kl. 8.00-17.00.

