Skilmálar - geymsla fyrir vélhjól/vélsleða
1. Aðilar
Samskip hf., kt. 440986-1539, Kjalarvogi 7-15, 104 Reykjavík tekur að sér að geyma vélhjól/vélsleða fyrir viðskiptavini sína í samræmi við skilmála þessa.
Viðskiptavinur er hver sá einstaklingur eða lögaðili sem óskar eftir þjónustu Samskipa við geymslu tækis, enda sé hann eigandi viðkomandi tækis eða hafi heimild til að ráðstafa því.
2. Geymsluhúsnæði
Tækið er geymt í geymsluhúsnæði vörumiðstöðvar Samskipa að Kjalarvogi 7-15 í Reykjavík. Húsnæðið er í góðu ástandi, upphitað og vaktað allan sólarhringinn, allan ársins hring. Í húsnæðinu eru einnig brunavarnir og varnir gegn vatnstjóni.
3. Gildistími
Gildistími geymslusamnings er að lágmarki einn mánuður.
4. Móttaka tækis til geymslu
Starfsmenn vörumiðstöðvar Samskipa útbúa ástandsskýrslu og taka myndir af tæki í hvert sinn sem það kemur til geymslu. Eldsneytistankur er tæmdur áður en tæki er komið fyrir í geymsluplássi.
Starfsmenn vörumiðstöðvar koma tækinu fyrir í geymslunni á sem haganlegastan hátt í samræmi við þyngd, eðli og ytra umfang.
5. Aðgangur að geymsluplássi
Viðskiptavinum er tryggður aðgangur að geymsluhúsnæðinu alla daga vikunnar í samræmi við opnunartíma vörugeymslunnar. Nánari upplýsingar um opnunartíma má finna á heimasíðu Samskipa, www.samskip.is.
6. Ábyrgð og ábyrgðartími
Samskip ber skaðabótaábyrgð eftir almennum reglum skaðabótaréttar á beinu tjóni viðskiptavinar, sem rekja má til ásetnings eða stórfellds gáleysis félagsins eða manna sem það ber ábyrgð á, með þeim undantekningum sem fram koma í skilmálum þessum. Sönnunarbyrði um skaðabótaábyrgð félagsins hvílir á þeim sem heldur því fram að félagið beri ábyrgð.
Upphaf ábyrgðar miðast við þann tíma þegar félagið hefur fengið tæki afhent í vörslur sínar. Ábyrgð lýkur þegar tæki hefur verið afhent viðskiptavini eða 15 dögum eftir að skrifleg tilkynning hefur verið send viðskiptavini um lok geymslusamnings þegar honum lýkur við uppsögn eða riftun.
7. Upphæð bóta og undanþága frá ábyrgð
Ef Samskipum ber að greiða bætur vegna beins tjóns viðskiptavinar ber að reikna fjárhæð slíkra bóta eftir verðmæti tækis sömu tegundar og af sömu gæðum og þegar tjónið átti sér stað. Sönnunarbyrðin fyrir verðmæti tækis samkvæmt framansögðu hvílir á viðskiptavini.
Bætur vegna hlutatjóns ber að reikna hlutfallslega, þó þannig að bætur vegna hlutatjóns geta aldrei numið hærri fjárhæð en ef tæki hefði orðið fyrir altjóni.
Samskip ber ekki undir neinum kringumstæðum ábyrgð á óbeinu eða afleiddu tjóni viðskiptavinar. Félagið ber heldur ekki ábyrgð á greiðslu bóta vegna fornmunaverðmætis, tilfinningalegra verðmæta eða annarra sérstakra verðmæta.
Félagið ber ekki undir neinum kringumstæðum ábyrgð á neins konar tjóni sem rekja má til einhverra neðangreindra orsaka:
- Bruna, sprengingu eða vatnstjóns, nema slíkt verði rakið til stórfellds gáleysis eða ásetnings félagsins eða starfsmanna sem það ber ábyrgð á.
- Gáleysi eða ásetningi viðskiptavinar eða manna á hans vegum.
- Meðferð tækis, s.s. lestun eða losun á vörubretti, sem viðskiptavinur eða einhver á hans vegum hefur framkvæmt.
- Bilunum, gangtruflunum, rafmagnsleysi eða öðru því sem leiðir til þess að kranar eða önnur tæki félagsins bili eða starfi ekki eðlilega, nema slíkt verði rakið til stórfellds gáleysis eða ásetnings félagsins eða starfsmanna sem það ber ábyrgð á.
- Röngum eða ófullnægjandi upplýsingum frá viðskiptavini eða mönnum á hans vegum.
- Ófullnægjandi eða gölluðum merkingum á tæki.
- Stöðvun eða takmörkun vinnuafls, verkföllum eða verkbönnum, hvort sem félagið á hlut að máli eða ekki og hvort sem framangreint er löglegt eða ólöglegt.
- Alvarlegum ófyrirsjáanlegum atburðum (force majeure), svo sem náttúruhamförum, ófriði, geislavirkni, uppþotum, eða öðrum þeim ytri aðstæðum sem félagið ræður ekki yfir.
Bætur til viðskiptavinar skal lækka eða fella þær niður ef sannað er að viðskiptavinur eða einhver á hans vegum hefur verið meðvaldur að tjóninu vegna ásetnings eða gáleysis. Auk þess ber viðskiptavini í öllum tilvikum að takmarka tjón sitt í samræmi við almennar reglur skaðabótaréttar.
Ekki skal koma til greiðslu vaxta af kröfum á hendur félaginu fyrr en frá uppkvaðningu dóms.
8. Fyrning kröfu
Undir öllum kringumstæðum skal Samskip vera laust undan ábyrgð nema mál sé höfðað innan 1 árs frá þeim degi sem viðskiptavinur vissi eða mátti vita um þau atvik sem telst grundvöllur kröfu hans.
9. Vátryggingar
Samskip tryggir ekki þau tæki sem tekin eru til geymslu. Af þeim sökum er viðskiptavini bent á að útvega sér tryggingar gegn tjóni á tækjum sínum á meðan geymslutíma varir.
10. Ábyrgð viðskiptavinar
Viðskiptavinur ber skaðabótaábyrgð gagnvart Samskipum eftir almennum reglum skaðabótaréttar.
Viðskiptavinur ábyrgist að hann sé eigandi eða rétthafi tækis sem afhent er félaginu til geymslu eða að hann hafi fullt umboð frá eiganda tækisins til þess að biðja um geymsluna og samþykkja þessa skilmála fyrir hönd eiganda tækisins.
Viðskiptavini er auk þess sem að framan greinir skylt að bæta og halda félaginu skaðlausu vegna allra afleiðinga þess að:
- Hann gefur félaginu ógreinilegar, rangar eða ófullnægjandi upplýsinga varðandi viðkomandi tæki.
- Merkingar á tæki voru lélegar eða ófullnægjandi.
- Lestun eða hleðsla tækis t.d. á vörubretti eða í gámi, af hálfu viðskiptavinar eða manna á hans vegum var ófullnægjandi.
- Tæki hefur skaðlega eða hættulega eiginleika sem ekki voru tilgreindir sérstaklega.
- Viðskiptavinur eða menn á hans vegum vanefna og/eða brjóta gegn ákvæðum þessara skilmála.
11. Haldsréttur og samningsveð
Samskip skal eiga haldsrétt og samningsveð, eftir því sem við á, í þeim tækjum sem félagið tekur að sér að geyma, vegna allra krafna þess á hendur viðskiptavini vegna vangoldinna leigugjalda og vegna allra annarra krafna á hendur honum, sem ekki tengjast geymslunni á nokkurn hátt.
Ef Samskip hyggjast beita framangreindum haldsrétti eða samningsveði skal það tilkynna viðskiptavini skriflega um slíkt. Í tilkynningunni skal gera almenna grein fyrir tilefni viðkomandi aðgerðar ásamt fjárhæð kröfunnar eða samtölu ef um fleiri kröfur er að ræða.
Komi til þess að viðskiptavinur greiði ekki kröfuna í kjölfar framangreindrar tilkynningar er félaginu heimilt að selja tækið á hvern þann hátt sem félagið telur að sé hagstæðast hverju sinni, á kostnað og áhættu viðskiptavinar og án þess að tilkynna viðskiptamanni það sérstaklega.
Nægi afraksturinn af sölu tækisins ekki til gera upp kröfuna, á félagið rétt á að fá mismuninn greiddan úr hendi viðskiptamanns ásamt vöxtum og kostnaði. Verði hins vegar afgangur af sölunni, eftir að búið er að gera upp kröfuna ásamt vöxtum og kostnaði, skal hann greiddur viðskiptavini.
12. Tilkynningar um tjón
Með móttöku tækis að lokinni geymslu telst viðskiptavinur samþykkja ástand þess. Hafi viðskiptavinur hins vegar athugasemdir við ástand tækis skal hann samstundis gera félaginu viðvart og útbúa skriflega tilkynningu um tjónið.
Í tilkynningu skal koma skýrt fram upplýsingar um tæki, fjárhæð bótakröfu ef kostur er og ástæðu þess að félaginu er haldið ábyrgu vegna viðkomandi atviks ef við á. Þá skal viðskiptamaður veita félaginu færi á að skoða tækið.
Sé ekki tilkynnt um tjón við móttöku skal réttur viðskiptavinar til þess að krefja félagið um bætur vegna atviksins falla niður.
13. Uppsögn - riftun
Samskipum er heimilt að segja upp geymslusamningi þessum með eins mánaðar fyrirvara.
Samskipum er heimilt að rifta geymslusamningi ef vanskil verða á greiðslu leigugjalds. Áður skal þó félagið sannanlega hafa sent viðskiptavini greiðsluáskorun. Riftun telst gild þegar viðskiptavinur hefur móttekið skriflega riftunaryfirlýsingu.
14. Lögsaga
Hverskyns deilumál sem upp koma á milli aðila um geymsluna, og sem ekki tekst að leysa með samningum, skulu rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

