Samskip

Samskip


strakur_stelpaFélagið var stofnað 1990 og tók þá við rekstri rótgróins sjóflutningafyrirtækis sem haldið hafði uppi farsælum millilandasiglingum í hálfa öld. Hjá Samskipum sameinast því þróttur og sóknarhugur nýrrar kynslóðar og áratuga reynsla ásamt þekkingu sem er dýrmæt á tímum örra breytinga.

Hlutverk

Samskip eru kraftmikið flutningafyrirtæki sem starfar á alþjóðlegum vettvangi. Hlutverk Samskipa á Íslandi er að veita alhliða flutningaþjónustu til og frá landinu, sem og innanlands, og stuðla þannig að aukinni hagkvæmni og verðmætasköpun í samfélaginu.

Yfir lönd yfir höf

Samskip hafa byggt upp heildarþjónustu á sviði flutninga, vörustýringar og vörumeðhöndlunar, innanlands sem utan. Félagið býður viðskiptavinum sínum flutninga um allan heim, geymslu á vörum á Íslandi eða erlendis og ráðgjöf vegna flutninga og birgða. Viðskiptavinir, sem nýta sér heildræna þjónustu Samskipa, geta því einbeitt sér að eigin framleiðslu, sölu og þjónustu til viðskiptavina, en geta jafnframt fylgst með vörum sínum í flutningaferlinu eða geymslu með öflugu upplýsingakerfi.

Nánar um Samskip >

Athafnasvæði Samskipa

Yfirlitskort af athafnasvæði Samskipa í Reykjavík





Logo