Samskip
Samskip
Félagið var stofnað 1990 og tók þá við rekstri rótgróins sjóflutningafyrirtækis sem haldið hafði uppi farsælum millilandasiglingum í hálfa öld. Hjá Samskipum sameinast því þróttur og sóknarhugur nýrrar kynslóðar og áratuga reynsla ásamt þekkingu sem er dýrmæt á tímum örra breytinga.
Hlutverk Samskipa er að veita viðskiptavinum alþjóðlegar, eftirsóknarverðar og áreiðanlegar heildarlausnir á sviði flutninga og flutningatengdrar þjónustu sem koma til móts við metnaðarfullar kröfur viðskiptavina.
Yfir lönd yfir höf
Samskip hafa byggt upp heildarþjónustu á sviði flutninga, vörustýringar og vörumeðhöndlunar, innanlands sem utan. Félagið býður viðskiptavinum sínum flutninga um allan heim, geymslu á vörum á Íslandi eða erlendis og ráðgjöf vegna flutninga og birgða. Viðskiptavinir, sem nýta sér heildræna þjónustu Samskipa, geta því einbeitt sér að eigin framleiðslu, sölu og þjónustu til viðskiptavina, en geta jafnframt fylgst með vörum sínum í flutningaferlinu eða geymslu með öflugu upplýsingakerfi.

