Flutningur á risabornum sem nota á við gerð aðrennslisganga Kárahnjúka gengur vel en alls vegur farmurinn um 1200 tonn. Í nótt verða þyngstu og stærstu hlutar borsins fluttir á Kárahnjúkasvæðið en þeim var skipað upp úr leiguskipi Samskipa, Fret Muese, á Reyðarfirði á ellefta tímanum í morgun.
Lesa meira
Miklar annir hafa verið hjá Landflutningum undanfarna daga. Stöðugur straumur hefur verið af bílum og fólki með pakka og sendingar af öllum stærðum og gerðum sem komast þurfa til viðtakenda fyrir jól.
Lesa meira
Fyrsti risaborinn af þremur sem nota á til að bora aðrennslisgöng Kárahnjúkavirkjunar kemur til Reyðarfjarðar fyrir hádegi í dag með flutningaskipinu Fret Meuse á vegum Samskipa. Það er stórflutningadeildar Samskipa (Sigla) sem hefur umsjón með flutningi borsins frá Bandaríkjunum til Íslands og sér einnig um flutninginn á honum frá Reyðarfirði á virkjanasvæðið við Kárahnjúka.
Lesa meira
Impregilo fær til landsins afar öflugan bor sem er yfir 120 metrar á lengd. Verkstæðiseining og matsalur er meðal þess sem má finna í bornum sjálfum. Borinn var áður notaður til þess að bora göng undir Queens í New York.
Lesa meira
Samskip hafa ákveðið að bæta við nýrri áætlunarleið milli Íslands og Evrópu frá og með áramótum. Hefur tæplega fimm þúsund tonna gámaskip verið tekið á leigu til að sinna þessu verkefni. Það verður jafnframt 14. skipið í reglubundum siglingum hjá Samskipum en að auki er félagið með allmörg skip í ýmsum sérverkefnum.
Lesa meira
Samskip hefur skráð starfsstöðvar sínar í samræmi við nýjar reglur sem yfirvöld í Bandaríkjunum hafa sett um innflutning á matvælum og fóðri til Bandaríkjanna.
Lesa meira
Samskip hafa gert samning við ÍBV um gerð á nýjum knattspyrnuvelli í Vestmannaeyjum sem mun bera nafnið Samskipavöllurinn. Hann verður æfingavöllur fyrir meistaraflokka karla og kvenna og nýtist einnig fyrir knattspyrnumót yngri flokka sem eru árvissir íþróttaviðburðir í Eyjum.
Lesa meira
Samskip hafa keypt hollenska flutningafyrirtækið Van Dieren Maritime BV sem byggt hefur upp og rekur sérhæft flutningakerfi í Norður-Evrópu, Eystrasaltslöndunum og Rússlandi. Kaupin eru enn einn áfanginn í útrás Samskipa í austurveg og munu styrkja stöðu félagsins enn frekar á þessum lykilmörkuðum.
Lesa meira
Samskip eru að hasla sér völl í flugfrakt á alþjóðamarkaði og hafa opnað skrifstofu á Schiphol flugvelli í Amsterdam sem er ætlað að efla enn frekar þjónustu við viðskiptavini félagsins.
Lesa meira