Samskip - Fréttir

Samskip flytja og fá nýtt símanúmer - 28.12.2004

Við hjá Samskipum opnum í dag nýjar og glæsilegar höfuðstöðvar við Kjalarvog í Reykjavík. Jafnframt hefur félagið fengið nýtt símanúmer, 458 8000. Lesa meira
 

Breytingar hjá Samskipum - 14.12.2004

Í kjölfar vaxandi starfsemi innanlandssviðs Samskipa hafa verið gerðar skipulagsbreytingar hjá félaginu og fjölgað í framkvæmdastjórn þess.

Lesa meira
 
Sæfari

Sæfari áfram hjá Samskipum - 10.12.2004

Vegagerðin hefur framlengt samning við Samskip um rekstur Sæfara til næstu tveggja ára en félagið hefur séð um rekstur ferjunnar frá 1. maí 1996. Tekur framlengingin gildi nú um áramót. Lesa meira
 
MV_Enchanter_1

Mikil umsvif hjá Samskipum vegna starfsmannaþorps Fjarðaáls - 9.12.2004

Mikil umsvif eru hjá Samskipum vegna vöruflutninga fyrir starfsmannaþorp Fjarðaáls-Alcoa. Hefur uppskipun staðið yfir á Reyðarfirði í dag og í gær úr einu stærsta vöruflutningaskipi sem þar hefur lagst við bryggju. Lesa meira
 

Vetraráætlun Herjólfs - 2.12.2004

Frá og með 1. desember 2004 tekur vetraráætlun Herjólfs gildi. Herjólfur fer eina ferð á dag skv. vetraráætlun en tvær ferðir á fimmtudögum, föstudögum og sunnudögum. Lesa meira
 

Samskip breyta siglingaáætluninni - 2.12.2004

Samskip breyta siglingaáætlun sinni frá og með 1. janúar 2005. Skip félagsins munu hafa viðkomu í Halmstad í Svíþjóð í stað Varberg sem hefur verið viðkomuhöfn Samskipa í Svíþjóð fram til þessa. Lesa meira
 
Kór - jólaboð

Vel heppnað jólaboð - 30.11.2004

Það ríkti glaumur og gleði í jólaboði Samskipa sem fram fór með pompi og prakt á Kaffi Reykjavík sl. föstudag. Fullt var út úr dyrum eins og venjulega, enda markar Samskipaboðið orðið upphaf hátíðarhaldanna hjá mörgum. Lesa meira
 

Samskip bæta enn þjónustuna við Færeyjar - 19.11.2004

Í framhaldi af opnun nýrrar skrifstofu Samskipa í Þórshöfn í Færeyjum í lok september sl. hefur nú verið ákveðið að fjölga ferðum félagsins þangað. Frá og með annarri viku í desember munu skip félagsins, Arnarfell og Helgafell, hafa viðkomu í Þórshöfn á leið sinni frá Evrópu til Reykjavíkur. Fyrsta viðkoma þar verður 13.desember nk. Lesa meira
 

Góð útkoma Samskipa í þjónustukönnun IMG - 17.11.2004

Persónuleg þjónusta, sveigjanleiki, öryggi, traust og afgreiðsluhraði skipta viðskipavini Samskipa mestu og telja þeir félagið standa sig vel á þessum sviðum samkvæmt nýrri þjónustukönnun IMG. Lesa meira
 
Birna

Nýr svæðisstjóri í Svíþjóð - 4.11.2004

Birna Ödefors hefur verið ráðin svæðisstjóri Samskipa í Svíþjóð og tekur hún til starfa 1. janúar 2005. Lesa meira
 

Öryggismál í hávegum höfð - 1.11.2004

Nýlega hlaut Ístak viðurkenningu í tilefni evrópsku vinnuverndarvikunnar fyrir gott innra eftirlitsstarf við byggingu vörumiðstöðvar Samskipa í Reykjavík. Lesa meira
 

Mikill vöxtur í starfsemi Samskipa í Asíu - 29.10.2004

Mikill vöxtur er í starfsemi Samskipa í Asíu og verður þriðja skrifstofa félagsins þar opnuð á mánudag 1. nóvember, í Dalian í Kína. Fyrir eru Samskip með skrifstofu í Pusan í Suður-Kóreu og Qingdao í Kína. Á næsta ári bætast við tvær skrifstofur Samskipa í Asíu, í Tælandi og Víetnam.

Lesa meira

 
Undirskrift KA og Landflutninga-Samskipa á Akureyri

Landflutningar-Samskip endurnýja styrktarsamning við KA - 25.10.2004

Styrktarsamningur Landflutninga-Samskipa við handknattleiksdeild KA á Akureyri hefur verið endurnýjaður. Hólmar Svansson, rekstrarstjóra Landflutninga-Samskipa á Akureyri og Magnús Gauti Gautason, fjármálastjóri handknattleiksdeildar KA, undirrituðu fyrir helgi samningi þar að lútandi. Lesa meira
 
asam01

Fyrsta vörusendingin afhent úr nýrri Vörumiðstöð Samskipa - 20.10.2004

Langþráð stund rann upp í morgun hjá starfsmönnum Samskipa þegar fyrsta vörusendingin var formlega afgreidd úr nýju Vörumiðstöðinni við Kjalarvog, tæpri viku eftir að flutningur hófst formlega í húsið.

Lesa meira

 
Ný skip

Smíði nýrra skipa Samskipa gengur vel - 18.10.2004

Vinna við smíði nýrra gámaskipa Samskipa, sem leysa af hólmi Arnarfell og Helgafell, gengur vel hjá þýsku skipasmíðastöðinni J.J.Sietas í Hamborg. Er gert ráð fyrir að nýju skipin verði bæði komin í reglubundnar siglingar fyrir félagið milli Íslands op meginlands Evrópu fyrir febrúarlok á næsta ári. Lesa meira
 
Undirskrift

Samskip styrkja meistaraprófsnema í verkfræði - 8.10.2004

Þorsteinn Rafn Johnsen, nemi í iðnaðarverkfræði við Verkfræðideild Háskóla Íslands, hefur hlotið styrk upp á 1,5 milljónir króna frá Samskipum til að vinna að meistaraprófsverkefni um bætt fyrirkomulag akstursstýringar sendibíla á höfuðborgarsvæðinu. Styrkurinn er hluti af þriggja ára samstarfssamningi Samskipa og Verkfræðideildar HÍ sem gengið var frá sl. haust. Lesa meira
 
Agnar framkvæmdastjóri Sölu- og markaðssviðs afhendir næsta manni kassann með bros á vör

Flutningar hafnir í Vörumiðstöð Samskipa við Kjalarvog - 7.10.2004

Margar hendur vinna létt verk segir máltækið og það átti svo sannarlega við í morgun þegar starfsmenn Samskipa mynduðu keðju frá Vöruhúsi A við Holtabakka að nýbyggingu félagsins við Barkarvog og selfluttu þangað pakka - til að sýna á táknrænan hátt að flutningar eru nú formlega hafnir á allri starfsemi Samskipa í nýja húsið. Lesa meira
 
Biodisil-logo

Landsflutningar-Samskip fyrsta fyrirtækið hérlendis sem notar biodísil - 6.10.2004

Landflutningar-Samskip er fyrsta fyrirtækið hérlendis sem notar biodísil, lífrænni og vistvænni dísilolíu sem Olíufélagið ESSO hefur hafið innflutning á. Hafa flutningabílar Landflutninga-Samskipa, á leiðinni Reykjavík-Akureyri, brennt biodísil undanfarna daga með góðum árangri. Lesa meira
 

Samskip færa út kvíarnar í Færeyjum - 29.9.2004

Samskip hafa opnað nýja skrifstofu í Þórshöfn í Færeyjum og munu endurskoða siglingaráætlunina í kjölfarið. Lesa meira
 
Herjólfur - haustáætlun

Haustáætlun Herjólfs tekur gildi frá og með 1. september - 1.9.2004

Frá og með 1. september tekur haustáætlun Herjólfs gildi. Lesa meira
 
Samskip styrktaraðili fiskidagsins mikla

Vel heppnaður fiskidagur á Dalvík - 17.8.2004

Fiskidagurinn mikli var haldinn í fjórða sinn á Dalvík laugardaginn 7. ágúst sl. Er talið að yfir 27.000 manns hafi mætt á hátíðarsvæðið yfir daginn í blíðskaparveðri - og gengu sumir svo langt að fullyrða að gestafjöldinn hafi farið yfir 30 þúsund þegar mest var! Voru hátíðarhöld öll með miklum glæsibrag og sem fyrr lögðu Samskip þar sitt af mörkum. Lesa meira
 

Samskip opna skrifstofu í Skotlandi - 4.8.2004

Ný þjónustuskrifstofu Samskipa tók til starfa í Skotlandi um mánaðamótin og heyrir rekstur hennar undir Samskip Ltd., dótturfyrirtæki félagsins á Bretlandseyjum.

Lesa meira

 

Stefnir í met flutninga með Herjólfi á þjóðhátíð í Eyjum - 22.7.2004

Nú þegar hafa um 3.200 manns bókað sig í ferðir Herjólfs á þjóðhátíð og er það svipað og Herjólfur flutti á þjóðhátíð árið 2003. Lesa meira
 
Frystigámar - 40 feta

150 nýir frystigámar í notkun hjá Samskipum - 6.7.2004

Umfangsmikil endurnýjun á sér nú stað á frystigámaflota Samskipa og fær félagið afhenta 150 frystigáma í Árósum í Danmörku í þessari og næstu viku. Lesa meira
 

Aukin þjónusta Samskipa í Þýskalandi - 1.7.2004

Samskip opnuðu í dag tvær nýjar þjónustuskrifstofur í Þýskalandi, í Düsseldorf og München, til viðbótar skrifstofunum tveimur sem félagið starfrækir í Bremen og Hamborg. Lesa meira
 
Rohde, Páll, Björn, Guðmundur og Gunnar.

Ferð verkfræðinema til Hamborgar í boði Samskipa - 30.6.2004

Laugardaginn 5. júní 2004 lögðu þrír meistaranemar í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands, Björn Björnsson, Guðmundur J. Kristjánsson og Gunnar Örn Erlingsson, ásamt leiðbeinanda þeirra, Páli Jenssyni prófessor við verkfræðideild HÍ, af stað í ferð á vegum Samskipa til Hamborgar. Ferðina hlutu þeir í verðlaun í samkeppni Samskipa og verkfræðideildar HÍ, sem gekk út á að smíða reiknilíkan fyrir Vörumiðstöð Samskipa. Lesa meira
 
Akrafell

Nýtt skip í þjónustu Samskipa

- 22.6.2004

Samskip hafa bætt við skipi á móti Skaftafellinu á siglingaleiðinni milli Íslands, Færeyja og meginlands Evrópu. Verður félagið framvegis með viðkomu vikulega á Reyðarfirði og í Klakksvík í Færeyjum í stað hálfsmánaðarlega áður. Lesa meira
 
Bás Samskipa og Landflutninga-Samskipa

Vel heppnuð sýning á Austurlandi - 16.6.2004

Samskip og Landflutningar-Samskip tóku þátt í sýningunni Austurland 2004 sem haldin var í íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum dagana 10.-13. júní. Lesa meira
 
Helgafell

Arnarfell og Helgafell fá alþjóðlega öryggisvottun - 1.6.2004

Gámaskipin Arnarfell og Helgafell, sem eru í eigu Samskipa hafa, fyrst íslenskra skipa, hlotið öryggisskírteini frá Alþjóða siglingamálastofnuninni (ISPS Code). Lesa meira
 

Franck & Tobiesen taka við rekstri skrifstofu Samskipa í Lysekil

- 26.5.2004

Samskip AB og Franck & Tobiesen AB hafa undirritað samning um að þeir síðarnefndu taki við rekstri á skrifstofu Samskipa í Lysekil í Svíþjóð og tekur samningurinn gildi 1. júní næstkomandi. Franck & Tobiesen starfa nú þegar sem umboðsmenn Samskipa í Halmstad. Þeir þekkja starfsemi Samskipa vel og munu þessar ráðstafanir því ekki hafa í för með sér breytingar fyrir viðskiptavini Samskipa. Lesa meira
 
Flutningur á bor

Þriðji og síðasti risaborinn kominn á Kárahnjúkasvæðið

- 24.5.2004

Flutningum á risaborunum þremur sem notaðir verða til að gera aðrennslisgöng Kárahnjúkavirkjunar lauk aðfaranótt miðvikudags þegar Landflutningar-Samskip fluttu síðasta stykkið úr borvél 3 í lögreglufylgd frá Reyðarfirði að aðgöngum 1 á Teigsbjargi. Lauk þar með einhverjum mestu þungaflutningum sem átt hafa sér stað hér á landi en farmurinn - borarnir þrír og fylgihlutir - vó alls um 3.600 tonn! Lesa meira
 

Björgunarskip SL með Samskipum til Reyðarfjarðar - 19.5.2004

Annað tveggja björgunarskipa Slysavarnafélagsins Landsbjargar(SL) sem Samskip styrkja kaup á er nú komið heilu og höldnu til landsins og mun innan tíðar leysa af hólmi björgunarskipið Hafbjörgina í Neskaupstað. Búist er við því að hitt björgunarskipið verði flutt til landsins með haustinu. Lesa meira
 
Bás Samskipa 5510

Samskip í áttunda sinn á Evrópsku sjávarútvegssýningunni - 11.5.2004

Evrópska sjávarútvegssýningin (European Seafood Exposition) í Brussel var haldin í byrjun maí. Sýningin er að flestra mati mikilvægasta sýningin á sviði sjávarútvegs sem haldin er á ári hverju. Alls tóku liðlega 1.230 fyrirtæki frá 75 löndum þátt í sýningunni í ár og hefur hún aldrei verið stærri. Lesa meira
 

Flutningur á risabor - 5.4.2004

Flutningur á öðrum hlutanum af bornum stóra vegna framkvæmdanna við Kárahnjúka gekk vel og kom síðasta bílalestin af fjórum í nótt upp á Kárahnjúka. Lesa meira
 

Skipulagsbreytingar hjá Samskipum í Þýskalandi

- 2.4.2004

Harold Donselman hefur verið skipaður framkvæmdastjóri Samskipa GmbH í Þýskalandi en Ásbjörn Gíslason hefur gengt því starfi samhliða forstjórastarfinu. Donselman hefur verið aðstoðar framkvæmdastjóri hjá Samskipum í Þýskalandi frá 2002. Hann mun hafa aðsetur í Bremen. Lesa meira
 
Flutningar á bor

Risabor númer 2 á leið til landsins með Samskipum - 31.3.2004

Annar risaborinn af þremur sem nota á til að bora aðrennslisgöng Kárahnjúkavirkjunar er væntanlegur til landsins á hádegi á morgun með skipi frá Bandaríkjunum. Vegur farmurinn samtals um eittþúsund tonn og á flutningur frá Reyðarfirði upp á virkjunarsvæðið að hefjast aðra nótt. Lesa meira
 

Seinkun á Helgafelli - 24.3.2004

Vegna slæms veðurs og slyss á athafnasvæði Samskipa í Rotterdam hefur áætlunarskipi Samskipa, M/V Helgafelli, seinkað og er áætlað að skipið komi til Reykjavíkur fimmtudaginn 25. mars nk. Lesa meira
 

Samskip taka við skrifstofu TECO LINES í Liverpool

- 23.3.2004

Samskip auka enn þjónustu sína á Bretlandseyjum frá og með næstu mánaðamótum þegar félagið tekur við rekstri umboðsskrifstofu eistneska skipafélagsins TECO LINES AS í Liverpool af félaginu Vogt & Maguire Liner Ltd. Þetta er önnur skrifstofa Samskipa á Bretlandseyjum en aðalskrifstofa félagsins er í Immingham á austurströnd Englands. Lesa meira
 
www.unicef.is

Samskip styrkja UNICEF - 18.3.2004

Mánudaginn 15. mars var undirritaður samstarfssamningur milli Samskipa, Pharmaco, Baugs, Allianz og Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Með þessum samningi er lokaáfanga náð við stofnun UNICEF á Íslandi og starfsgrundvöllur þess tryggður, sem þýðir að fjáröflun á vegum UNICEF á Íslandi mun nú renna til þurfandi barna víða um heim. Lesa meira
 
Klaksvík

Samskip semja við Farmaleiðir í Færeyjum - 10.3.2004

Samskip hafa undirritað samning við flutningafyrirtækið Farmaleiðir í Færeyjum um að það annist afgreiðslu skipa félagsins í Klaksvík og alla flutninga fyrir Samskip innan Færeyja. Fyrsta viðkoma m/s Skaftafells í Færeyjum verður 1. apríl nk., og síðan á 14 daga fresti á leiðinni frá Reyðarfirði til Immingham á Bretlandseyjum og Rotterdam í Hollandi. Lesa meira
 

Rekstur Samskipa árið 2003 - 4.3.2004

Hagnaður Samskipa var 366 milljónir króna í fyrra sem er 124 milljónum króna betri afkoma en árið 2002 en þá var hagnaður félagsins 242 milljónir króna eftir skatta. Heildartekjur Samskipa á liðnu ári námu 17,3 milljörðum króna og hækkuðu um 3,2 milljarða frá árinu áður, eða um 23 af hundraði. Lesa meira
 

Aðalfundur Samskipa í dag - 4.3.2004

Aðalfundur Samskipa verður haldinn í dag, fimmtudaginn 4. mars, í Salnum í Kópavogi og hefst kl. 17:00. Lesa meira
 

Voráætlun Herjólfs - 1.3.2004

Í dag tók gildi voráætlun Herjólfs. Í voráætlun eru ferðir þriðjudaga, miðvikudaga og laugardaga frá Vestmannaeyjum kl. 8.15 og frá Þorlákshöfn kl. 12.00. Lesa meira
 

Cruise Iceland stofnað - 24.2.2004

Rúmlega 70 manns mættu á fyrsta fund Cruise Iceland samtakanna sem haldinn var á Hótel Sögu 20. febrúar s.l. Á fundinum voru flutt erindi um móttöku skemmtiskipa í hinum ýmsu höfnum landsins og fram kom að sumarið 2004 verður það stærsta í komum skemmtiskipa til landsins. Lesa meira
 

Samskip aðalstyrktaraðilar Matur 2004

- 23.2.2004

Samskip eru aðalstyrktaraðilar sýningarinnar Matur 2004 sem haldin verður dagana 26.- 29. febrúar í Fífunni, sýningahöll Kópavogsbæjar. Matvælasýningarnar í Kópavogi eru stærstu vörusýningar sinnar tegundar á Íslandi og eru sýnendurnir fyrirtæki sem tengjast mat og matargerð á einn eða annan hátt og skipta þeir hundruðum í ár. Lesa meira
 
Slysavarnafélagið Landsbjörg - undirskrift

Samskip styrkja Slysavarnafélagið Landsbjörg - 12.2.2004

Slysavarnafélagið Landsbjörg (SL) og Samskip hafa undirritað styrktarsamning sem felur í sér að Samskip styrkja SL við kaup á 2 björgunarskipum og flutning þeirra heim til Íslands frá Bretlandi. Nemur verðmæti samningsins samtals 6 milljónum króna. Lesa meira
 

Óhapp sökum óveðurs - 9.2.2004

Kassabíll með beislisvagn, sem lestaði á Landflutningum föstudaginn 6. febrúar vörur til Egilsstaða, lenti í hremmingum aðfararnótt laugardags. Lesa meira
 
Ikea lest

Samskip taka við rekstri járnbrautalestar milli Svíþjóðar og Þýskalands

- 6.2.2004

Hollenska flutningafyrirtækið Van Dieren Maritime BV (VDM), sem Samskip eignuðust 80% hlut í sl. haust, hefur tekið við rekstri járnbrautaflutningalestar milli Älmhult í Svíþjóð og Herne í Þýskalandi. Samningurinn er til tveggja ára. Lesa meira
 
Jökulfell

Nýtt frystiskip í þjónustu Samskipa - 5.2.2004

Til að mæta aukinni þörf fyrir flutninga til og frá Íslandi hafa Samskip leigt 3000 tonna frystiskip sem fengið hefur nafnið M/s Jökulfell. Lesa meira
 

Nýtt skip vegna bilunar í Helgafelli - 2.2.2004

Vegna bilunar í Helgafellinu hafa Samskip tekið á leigu skip í Rotterdam sem halda mun til Stavanger og taka farminn og flytja til Íslands. Lesa meira
 

Bilun í Helgafellinu við Noreg

- 2.2.2004

Skömmu fyrir hádegi í gær varð bilun í flutningaskipi Samskipa, Helgafellinu, þegar það var statt um 30 mílur vestur af Stavanger í Noregi. Helgafellið var þá nýfarið frá Moss á leið sinni til Íslands. Lesa meira
 

Samskip og Junior Achievement í samstarfi

- 26.1.2004

Samskip hf. er aðili að Junior Achievement á Íslandi (JA) sem heldur úti viðskiptatengdum námskeiðum fyrir grunn- og framhaldsskólanema. Eitt starfsár er að baki og er ánægjulegt að Samskip sendir nú í annað sinn einn starfsmanna sinna til að starfa sem ráðgjafi á námskeiði sem heitir Fyrirtækjasmiðjan. Lesa meira
 
Skaftafell - fyrsta ferð

Samskipamenn fagna komu nýs vöruflutningaskips - 21.1.2004

Austfirðingar samfögnuðu með Samskipum í dag í tilefni af komu nýjasta vöruflutningaskips félagsins, M/s Skaftafells, til Reyðarfjarðar. Þetta er fyrsta áætlunarferferð skipsins á nýrri siglingaleið milli Íslands og meginlands Evrópu. Skaftafellið kom til Reyðarfjarðar í gær frá Rotterdam í Hollandi og heldur utan aftur í kvöld til Immingham á Bretlandseyjum og Rotterdam. Lesa meira
 

Samskip kaupa hollenska flutningafyrirtækið Nedshipping

- 19.1.2004

Samskip hafa tekið yfir rekstur hollenska flutningafyrirtækisins Nedshipping Liner Agencies BV. Nedshipping er sérhæft í gámaflutningum milli Skandínavíu, Finnlands og meginlands Evrópu. Allir starfsmenn Nedshipping í Hollandi halda áfram störfum hjá Samskipum og heyra undir skrifstofu félagsins í Rotterdam. Lesa meira
 
M/s Skaftafell

Áætlunarsiglingar Skaftafellsins hafnar - 16.1.2004

Áætlunarsiglingar nýjasta vöruflutningaskips Samskipa, M/s Skaftafells, milli Evrópu og Íslands hófust kl. 10.00 í morgunn þegar skipið lét úr höfn frá Rotterdam í Hollandi áleiðis til Reyðarfjarðar en þangað er skipið væntanlegt 19. þessa mánaðar. Lesa meira
 

Fleiri fréttir






Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica