Samskip - Fréttir

Samskip opna skrifstofu í Vigo á Spáni - 30.12.2005

Samskip opna skrifstofu í Vigo á vesturströnd Spánar um áramótin og verða helstu verkefni hennar umsýsla með hverskyns fiskafurðir, bæði kældar og frosnar. Lesa meira
 
Samskipa jól

Jólakveðja frá Samskipum - 21.12.2005

Samskip óska viðskiptavinum og landsmönnum öllum gleðilegrar jólahátíðar með þökk fyrir viðskiptin og samstarfið á árinu sem er að líða. Lesa meira
 
Ísheimar

Rúmlega 2.800 tonnum af síld landað inn í Ísheima - 22.11.2005

Stórflutningadeild Samskipa hefur staðið í ströngu síðustu daga. Þrjú skip hafa á skömmum tíma landað rúmlega 2.800 tonnum af síld á Vogabakka. Lesa meira
 

Íslenska fyrir erlent starfsfólk - 17.11.2005

Fyrsta starfstengda námskeiðinu í íslensku á vegum Samskipa lýkur senn. Ákveðið var að námskeiðið væri skylda fyrir Pólverja sem allir fluttu hingað til lands í ágúst og september. Lesa meira
 

Fimm námskeið í skyndihjálp - 15.11.2005

Fimm námskeið voru haldin í skyndihjálp í október og nóvember hjá Samskipum. Tvö á Akureyri en þrjú í Reykjavík. Tvö námskeiðanna voru sérsniðin að þörfum bílstjóra fyrirtækisins. Allir eldvarnafulltrúar Samskipa eru skyldugir að sækja námskeiðin en öðru starfsfólki var það valfrjálst. Lesa meira
 

Nýtt skipurit og tveir nýir framkvæmdastjórar hjá Samskipum - 26.10.2005

Nýtt skipurit hefur tekið gildi hjá Samskipum á Íslandi. Það tekur skýrara mið af þjónustuframboði félagsins, einfaldar skipulag og styttir boðleiðir. Lesa meira
 
_MG_1120

Kvennafrí hjá Samskipum - 25.10.2005

Klukkan 14.08 í gær gengu konurnar í Samskipum og Jónum Transport fylktu liði á baráttufund á Ingólfstorgi. Lesa meira
 

Samskip gefa konum frí á Kvennafrídaginn - 21.10.2005

Stjórnendur Samskipa hafa ákveðið að gera konum sem starfa hjá félaginu kleift að taka þátt í Kvennafrídeginum, mánudaginn 24. október nk., án þess að laun þeirra skerðist á nokkur hátt. Lesa meira
 
PDRM1316

Samskip styrkja meistaraflokk Fylkis í handknattleik - 20.10.2005

Í gær var undirritaður samstarfssamning milli Samskipa og handknattleiksdeildar Fylkis, en Samskip mun styrkja meistaraflokk Fylkis næstu 3 árin. Lesa meira
 

Förgun eiturefna lokið - 17.10.2005

Förgun er nú lokið á eiturefnum sem láku úr gám sem laskaðist í lest Akrafells, leiguskips Samskipa, þegar skipið hreppti aftakaveður í fyrradag við Skotland, á leið heim frá Hollandi. Lesa meira
 

Slökkviliðið aðstoðar við losun Akrafells - 17.10.2005

Akrafell - leiguskip Samskipa lenti í óveðri á leið til hafnar í gær. Munu gámar hafa færst til í lest skipsins með þeim afleiðingum að leki kom að gám sem innihélt hættuleg efni. Lesa meira
 
IMG_9145

Samskip hljóta viðurkenningu fyrir lofsvert lagnaverk - 11.10.2005

Nýja Samskipahúsið við Kjalarvog hlaut viðurkenningu Lagnafélags Íslands fyrir "lofsvert lagnaverk 2004" og veitti Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Samskipa, henni viðtöku við hátíðlega athöfn í höfuðstöðvum Samskipa í gær. Lesa meira
 
Höfnin á Akureyri

Framtíðaraðstaða Samskipa á Akureyri á Oddeyrartanga - 30.9.2005

Umhverfisráð Akureyrar hefur samþykkt erindi Samskipa um lóð fyrir framtíðaraðstöðu félagsins á hafnarsvæðinu við Oddeyrartanga. Samskipamenn fagna því að niðurstaða er komin í málið. Verður nú hafist handa við hönnunarvinnu og standa vonir til að byggingarframkvæmdir geti hafist í vetur. Lesa meira
 
Norðlenska og Landflutningar-Samskip undirrita samning

Landflutningar-Samskip flytja alla fersk- og frystivöru fyrir Norðlenska - 19.9.2005

Undirritaður hefur verið víðtækur samstarfssamningur Norðlenska og Landflutninga-Samskipa sem kveður á um að Landflutningar-Samskip taki að sér flutning á allri fersk- og frystivöru Norðlenska til viðskiptavina fyrirtækisins út um allt land frá Akureyri, Húsavík og Höfn í Hornafirði. Jafnframt felur samningurinn í sér dreifingu á vörum Norðlenska til viðskiptavina á Akureyri og höfuðborgarsvæðinu. Lesa meira
 
Stuðmannaball

Vel heppnuð sjávarútvegssýning - 13.9.2005

Íslenska sjávarútvegssýningin sem haldin var í Kópavogi í síðustu viku var ákaflega vel sótt og gestir og sýnendur almennt ánægðir. Samskip tóku þátt í sýningunni að venju, voru bæði með bás á sýningarsvæðinu og tjald á útisvæði þar sem vinum og velunnurum var boðið til gleðistundar. Lesa meira
 
Golfmot Eyjar 2

Golfmót Samskipa í Vestmannaeyjum - 12.9.2005

Um 80 viðskiptavinir og starfsmenn Samskipa tóku þátt í árlegu golfmóti félagsins í Vestmannaeyjum 2.september s.l. í blíðskaparveðri. Lesa meira
 

Samskip opna skrifstofu í Víetnam - 23.8.2005

Mikill vöxtur er í starfsemi Samskipa í Asíu og hefur fjórða skrifstofa félagsins þar nú verið opnuð í Ho Chi Minh borg í Víetnam. Fyrir eru Samskip með skrifstofu í Pusan í Suður-Kóreu og Qingdao og Dalian í Kína. Lesa meira
 

Samskip fá viðurkenningu Reykjavíkurborgar - 19.8.2005

Samskip hlutu viðurkenningu skipulagsráðs Reykjavíkur árið 2005 vegna fegurstu lóða fyrirtækja í borginni. Einnig voru veittar viðurkenningar fyrir lóðir fjölbýlishúsa og endurbætur á eldri húsum. Lesa meira
 

Samskip styrkja meistaranema í verkfræði - 18.8.2005

Guðjón Örn Björnsson, nemi í byggingaverkfræði við University of Alberta og Háskóla Íslands hefur hlotið styrk upp á eina milljón króna frá Samskipum til að vinna að meistaraprófsverkefni um setningu þungatakmarkana á vegum. Lesa meira
 

Evrópsk samkeppnisyfirvöld samþykkja kaup Samskipa á breska skipafélaginu Seawheel - 18.8.2005

Kaup Samskipa á breska skipafélaginu Seawheel eru nú endanlega frágengin í kjölfar úrskurðar evrópskra samkeppnisyfirvalda í málinu. Lesa meira
 
IMG_4946

Skaftafellið fyrsta flutningaskipið sem leggst við bryggju í álvershöfninni á Reyðarfirði - 20.7.2005

Skaftafellið kom til Reyðarfjarðar í gær, þriðjudaginn 19. júlí, með fyrsta farminn sem skipað er upp í nýju álvershöfninni. Það er krani af gerðinni Liebherr LHM400 með allt að 110 tonna lyftigetu og verður hann notaður við uppskipun á stórförmum og gámum með hráefni til álversins. Er þetta í fyrsta sinn sem flutningaskip lagðist við kæja í nýju álvershöfninni. Lesa meira
 
Seawheel

Samskip kaupa breska skipafélagið Seawheel - 4.7.2005

Samskip hafa fest kaup á breska skipafélaginu Seawheel og verður rekstur þess sameinaður gámaflutningastarfsemi Samskipa í Evrópu. Lesa meira
 

Fjögur ný skip bætast í flota Geest North Sea Line - 29.6.2005

Dótturfélag Samskipa, Geest North Sea Line, hefur gengið frá leigu á fjórum nýjum gámaflutningaskipum og verða þau afhent félaginu á næsta ári. Lesa meira
 

Hluthafafundur - 14.6.2005

Stjórn Samskipa hf. boðar til hluthafafundar mánudaginn 20. júní 2005 kl. 16.00 síðdegis í ráðstefnusal að Kjalarvogi 7-15, Reykjavík. Lesa meira
 
Undirskrift Samskip og ÍBV

Samskip og Herjólfur aðalstyrktaraðilar knattspyrnudeildar ÍBV - 10.6.2005

Samskip og knattspyrnudeild IBV hafa skrifað undir samning um samstarf félaganna til næstu tveggja ára. Lesa meira
 

Samningur um uppsetningu og rekstur risakrana á milli Bectel og Samskipa - 8.6.2005

Bechtel, sem byggir álver Alcoa Fjarðaáls við Reyðarfjörð og Samskip hafa gert með sér samning um uppsetningu og rekstur á risakrana við hina nýju álvershöfn. Lesa meira
 
Breytingar hjá Samskipum

Breytingar hjá Samskipum - 24.5.2005

Michael F. Hassing fyrrverandi forstjóri Mærsk á Bretlandseyjum er nýr forstjóri Samskipa við hlið Ásbjörns Gíslasonar sem flytur sig um set til Íslands. Lesa meira
 
Kvikmyndafræði

Háskóli Íslands og Samskip í samstarf um kvikmyndafræði - 11.5.2005

Kennsla hefst í haust í kvikmyndafræði sem sjálfstæðri námsgrein við hugvísindadeild Háskóla Íslands og ætla Samskip að styðja námið rausnarlega með því að kosta stöðu kennara. Til að byrja með verður kvikmyndafræðin 30 eininga aukagrein á BA stigi en stefnt er að því að byggja upp framhaldsnám í greininni á næstu árum. Lesa meira
 
Samskipabásinn í Færeyjum

North Atlantic Fish Fair - sýning í Færeyjum - 9.5.2005

Sýningar sem þessar eru gríðarlega mikilvægar fyrir Samskip. Lífæð Færeyja er og verður ávallt tengd fiskveiðum, vinnslu og flutningum. Hér gefst gott tækifæri til að hitta fólk, bæði heimamenn og gesti frá öðrum löndum. Lesa meira
 

Nýr umboðsmaður Samskipa á Ítalíu - 6.5.2005

Nýr umboðsmaður Samskipa hefur tekið til starfa í Mílanó á Ítalíu. Lesa meira
 

Samskip kaupa frystiflutninga- og geymslustarfsemi hollenska fyrirtækisins Kloosterboer - 26.4.2005

Samskip hafa keypt frystiflutninga- og geymslustarfsemi hollenska flutningafyrirtækisins Kloosterboer og verður hún sameinuð frystiflutningastarfsemi Samskipa. Lesa meira
 
sjobjorgunarstod

Eins árs afmæli Samskipa í Færeyjum - 5.4.2005

Samskip færðu Sjóbjörgunarstöð Færeyja rúmlega eina milljón króna að gjöf í hófi sem haldið var í Þórshöfn í Færeyjum til að minnast eins árs starfsafmælis skrifstofu Samskipa þar. Lesa meira
 

Samskip herða útrásina í austurveg - 31.3.2005

Samskip hafa opnað nýjar skrifstofur í Eistlandi, Lettlandi og Litháen til að sinna ört vaxandi starfsemi félagsins í þessum löndum og efla enn frekar sókn Samskipa inn á rússneska markaðinn og áfram austur á bóginn. Lesa meira
 

Kjalar ehf.með um 56% hlut í Keri hf. - 17.3.2005

Kjalar ehf. hefur keypt stærstan hlut Vogunar og hlut Fiskveiðihlutafélagsins Venusar í Keri hf. Eftir kaupin á Kjalar 55,7% eignarhlut í Keri. Kaupverðið er trúnaðarmál. Lesa meira
 

Átta nýir BV206 Hägglund beltabílar til björgunarsveita - 11.3.2005

Slysavarnafélagið Landsbjörg afhendir í dag nokkrum björgunarsveita sinna 8 alhliða og aflmikla beltabíla - sænska Hägglund BV206. Fimm farartæki af þessari gerð hafa verið í notkun hjá björgunarsveitum og Landsvirkjun um nokkurra ára skeið og hafa reynst vel. Til þessa hafa þeir aðallega verið notaðir sem snjóbílar. Félagið fær bílana á mjög góðu verði og hefur notið góðvildar Samskipa varðandi flutning þeirra heim til Íslands. Lesa meira
 

Hagnaður Samskipa jókst yfir 90% milli ára - 9.3.2005

Hagnaður Samskipa var 708 milljónir króna eftir skatta árið 2004 en árið áður var hagnaður félagsins 366 milljónir króna eftir skatta. Aukningin er 342 milljónir króna, eða ríflega 90 af hundraði. Heildartekjur Samskipa á liðnu ári námu 23 milljörðum króna og hækkuðu um tæpa sex milljarða frá árinu áður, eða um 33,5 %. Lesa meira
 

Breytingar á stjórn Samskipa - 9.3.2005

Flemming R. Jakobs og Lilja Dóra Halldórsdóttir voru kjörin í stjórn Samskipa á aðalfundi félagsins í dag í stað Jóns Kristjánssonar og Jóns Þórs Hjaltasonar. Aðrir stjórnarmenn, Guðjón Ármann Jónsson, Karsten M. Olesen og Ólafur Ólafsson, voru endurkjörnir. Lesa meira
 

Samskip verða eitt stærsta gámaflutningafélag í siglingum innan Evrópu eftir kaup á hollenska flutningafélaginu Geest - 3.3.2005

Samskip hafa keypt hollenska flutningafyrirtækið Geest North Sea Line og verður rekstur þess sameinaður gámaflutningastarfsemi Samskipa í Evrópu undir nafni Geest. Kaupverð er ekki gefið upp en nærri lætur að velta Samskipa tvöfaldist milli ára og verði um 45 milljarðar íslenskra króna á þessu ári. Geest North Sea Line verður rekið sem dótturyfirtæki Samskipa og verður eitt stærsta gámaflutningafélag í siglingum innan Evrópu. Um 60% af heildarveltu Samskipa verður vegna starfsemi utan Íslands og Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa erlendis, verður stjórnarformaður Geest. Lesa meira
 

Nýtt Helgafell í þjónustu Samskipa - 28.2.2005

Stjórnendur Samskipa veittu viðtöku nýju 11 þúsund tonna skipi félagsins við hátíðlega athöfn í Hamborg á föstudag að viðstöddum Ólafi Davíðssyni sendiherra og fleiri góðum gestum. Hlaut skipið nafnið Helgafell og leysir af hólmi gamla Helgafellið á siglingaleiðinni milli Íslands og Evrópu. Lesa meira
 
Jökulfell - leiguskip Samskipa

M/S Jökulfell - leiguskip Samskipa - 8.2.2005

Í gærkveldi um kl. 21.00 barst neyðarkall frá M/S Jökulfelli ¿ leiguskipi Samskipa þar sem það var statt um 60 mílur norð-austur af Færeyjum. Lesa meira
 

Nýja Arnarfellið reynist vel - 1.2.2005

Jómfrúarferð nýja Arnarfellsins hefur gengið vel fyrir utan smá örðugleika í Færeyjum, sem veldur því að það verður seinna á ferðinni í Reykjavík en upphaflega var ráðgert. Er það nú vætanlegt til hafnar síðdegis á morgun, 2. febrúar. Lesa meira
 

Varberg aftur viðkomuhöfn Samskipa í Svíþjóð - 28.1.2005

Frá og með 31.janúar taka Samskip aftur upp viðkomu í Varberg í Svíþjóð, en um nokkurra vikna skeið var viðkoma í Halmstad. Lesa meira
 
MJ2J5802

Nýtt Arnarfell í þjónustu Samskipa - 22.1.2005

Merk tímamót urðu í sögu Samskipa í dag þegar stjórnendur félagsins veittu viðtöku fyrra kaupskipinu af tveimur sem þýska skipasmíðastöðin JJ Sietas hefur smíðað fyrir félagið. Hlaut það nafnið Arnarfell og leysir af hólmi eldra skip félagsins með sama nafni á siglingaleiðinni milli Íslands og Evrópu. Kostnaður við smíði skipsins er um 1,7 milljarður íslenskra króna. Lesa meira
 

Verkfall í Árósum - 21.1.2005

Vegna verkfalls í Árósum í dag mun skip Samskipa, Helgarfellið ekki geta lestað þar.

Lesa meira

 

Samskip flytja vörumóttökuna í Noregi frá Moss til Osló - 20.1.2005

Vegna breyttrar siglingaráætlunar hefur verið ákveðið að færa vörumóttöku í Noregi fyrir Ísland frá Moss til Osló. Lesa meira
 
Halldór Ásgrímsson

Forsætisráðherra hringdi inn starfsemi í nýjum höfuðstöðvum Samskipa - 17.1.2005

Nýjar höfuðstöðvar Samskipa voru formlega teknar í notkun sl. laugardag af Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra í glæsilegri veislu sem félagið efndi til af þessu tilefni. Klingdi forsætisráðherra skipsklukku til marks um að starfsemin væri formlega hafin í nýbyggingu Samskipa við Kjalarvog við góðar undirtektir um 900 gesta. Lesa meira
 

Samskip opna skrifstofu í Úkraínu - 11.1.2005

Ný þjónustuskrifstofa Samskipa tók til starfa í Úkraínu um áramótin og heyrir rekstur hennar undir Samskip GmbH., dótturfyrirtæki félagsins í Þýskalandi. Lesa meira
 

Tilkynning frá Samskipum - 11.1.2005

Samskip hafa ákveðið í samræmi við lög um siglingavernd nr. 50/2004 og ISPS-kóða SOLAS-samþykktarinnar, að leggja á öryggisgjald til að mæta kostnaði félagsins vegna skipa- og hafnaverndar. Öryggisgjald leggst á inn- og útflutning til og frá Íslandi. Lesa meira
 

Fleiri fréttir






Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica