Samskip - Fréttir

Aukin umsvif Samskipa í Mið-Ameríku - 22.12.2006

Vegna aukinna umsvifa Samskipa í Mið-Ameríku hefur verið samið við flutningafélagið Container Transport Solutions Inc. í Panama um að vera umboðsaðili félagsins í þessum heimshluta. Lesa meira
 
Starfsmenn Ísheima

Ísheimar fá viðurkenningu fyrir góða vörumeðhöndlun - 15.12.2006

Ísheimar, frystivörumiðstöð Samskipa við Kjalarvog, fengu í gær afhent verðlaun fyrir góða vörumeðhöndlun. Verðlaunin eru farandbikar sem hægt er að vinna til eignar ef viðkomandi starfsstöð vinnur hann þrisvar sinnum. Lesa meira
 

Samskip opna nýja skrifstofu í Svíþjóð - 12.12.2006

Samskip hafa opnað söluskrifstofu í Helsingjaborg í Svíþjóð og er það jafnframt þriðja skrifstofa félagsins þar í landi. Fyrir voru Samskip með söluskrifstofur í Gautaborg og Varberg. Lesa meira
 

Nýtt vöruhús í Norfolk í Bandaríkjunum - 20.11.2006

Frá og með 21. nóvember mun Eastern Exports Warehouse sjá um móttöku farms til útflutnings frá Bandaríkjunum og vöruhýsingu fyrir Samskip. Lesa meira
 

Fimm fyrirtæki verða bakhjarlar UNICEF... með rautt nef! - 13.11.2006

Í dag skrifuðu fimm af öflugustu fyrirtækjum landsins undir styrktarsamninga við UNICEF á Íslandi. Samningarnir hljóða upp á 60 milljónir króna og ná til næstu þriggja ára. Fyrsta verkefni UNICEF og nýrra bakhjarla verður að halda Dag rauða nefsins á Íslandi. Lesa meira
 
Ur_sal

Umhverfisvænar vélar draga úr útblæstri hjá Samskipum - 13.11.2006

Fundaröð Samtaka atvinnulífsins um atvinnulíf og umhverfi er hafin. Fyrsta umræðuefnið var útblástur vegna flutninga á sjó og landi. Kristján Ólafsson, deildarstjóri hjá Samskipum flutti þar m.a. erindi, en hann fjallaði um umhverfismál og útblástur lofttegunda frá skipum ásamt því að segja frá hvernig málum væri háttað hjá Samskipum. Lesa meira
 

Sjávarútvegssýning í Kína - 8.11.2006

Samskip tóku þátt í kínversku sjávarútvegssýningunni, sem haldin var í Qingdao 1.-3. nóvember sl. Voru Samskip með hluta af bás Útflutningsráðs ásamt mörgum öðrum. Lesa meira
 

Samskip annast þjónustu við USS Wasp - 16.10.2006

Samskip annast þjónustu hér á landi við bandaríska herskipið USS Wasp sem er í nokkurra daga heimsókn í tilefni af nýju varnarsamkomulagi Íslands og Bandaríkjanna sem undirritað var á dögunum. Lesa meira
 

Samskip undir nýju merki - 29.9.2006

Tímamót eru í sögu Samskipa á morgun, 30. september, þegar öll starfsemi félagsins sameinast undir einu nafni og nýju merki félagsins. Breytingunum er ætlað að styrkja enn frekar ímynd Samskipa á alþjóðlegum flutningamarkaði í kjölfar þeirrar umfangsmiklu uppbyggingar sem átt hefur sér stað á sl. 15 mánuðum, í kjölfar kaupanna á hollenska flutningafélaginu Geest North Sea Line og breska flutningafélaginu Seawheel. Hefur velta Samskipa þrefaldast eftir þessar fjárfestingar og farið úr 20 milljörðum króna árið 2003 í um 60 milljarða á yfirstandandi ári. Lesa meira
 

Rekstur Sæfara áfram hjá Samskipum - 29.9.2006

Samningur Vegagerðarinnar og Samskipa um rekstur Grímseyjarferjunnar Sæfara hefur verið framlengdur um eitt ár. Ný ferja, sem er verið að standsetja, verður tekin í notkun á samningstímabilinu. Lesa meira
 

Aukin umsvif Samskipa á Spáni - 22.9.2006

Samskip taka frá og með næstu mánaðamótum við allri gámaflutningastarfsemi Odiel Bilbao SA á Spáni en félagið hefur verið samstarfsaðili Geest North Sea Line sem Samskip keyptu á fyrri hluta síðasta árs. Lesa meira
 

Samskip í Vigo flytja skrifstofu sína í nýtt húsnæði - 27.7.2006

Þann 1. águst flytja Samskip í Vigo skrifstofu sína í nýtt húsnæði. Lesa meira
 
Queen Elisabet 2

Queen Elizabeth önnur komin til Reykjavíkur - 6.7.2006

Snemma í morgun kom Queen Elizabeth önnur til Reykjavíkur og lagði að Skarfabakka. Þetta er í fyrsta skipti se m svo stórt skip leggst að bryggju hér á Íslandi en skipið er 70.327 brúttótonn og 294 metra langt. Farþegarnir eru 1.735 talsins og áhöfnin 1.019 manns. Lesa meira
 

Opna tvær skrifstofur í Brasilíu - 8.6.2006

Ný kælitækni í gámaflutningum tryggir ferskleika vörunnar: Samskip hafa opnað tvær söluskrifstofur í Suður-Ameríku þar sem megináherslan er lögð á flutningsþjónustu við ávaxta- og grænmetisframleiðendur þar sem beitt er nýrri geymslutækni í gámaflutningum sem tryggir bæði gæði- og ferskleika vörunnar. Stefnt er að því að opna fleiri skrifstofur í álfunni á næstunni. Lesa meira
 
Afhending skipa 2

Öll starfsemin sameinuð undir einu nafni - 1.6.2006

Tímamót í útrásarsögu Samskipa: Öll flutningastarfsemi Samskipa verður sameinuð undir nafni Samskipa í haust. Þetta var tilkynnt í Rotterdam í dag þegar Samskip veittu viðtöku tveimur nýjum kaupskipum sem eru sérsmíðuð fyrir félagið til gámaflutninga í Evrópu. Skipin hlutu nöfnin Samskip Pioneer og Samskip Courier og undirstrika nöfnin enn frekar þá ákvörðun að starfsemi Samskipa erlendis, þ.á.m. rekstur Geest North Sea Line, verði framvegis undir vörumerkinu SAMSKIP. Lesa meira
 

Samskip opna nýja skrifstofu í Gautaborg - 18.5.2006

Samskip opna söluskrifstofu í Gautaborg nú um mánaðamótin til viðbótar við söluskrifstofu félagsins í Varberg, rétt sunnan við Gautaborg. Þá verður þriðja skrifstofa Samskipa í Svíþjóð opnuð í Helsingborg í september. Lesa meira
 

Samskip opna skrifstofu í Suður-Kóreu - 19.4.2006

Samskip hafa opnað skrifstofu í Seoul í Suður-Kóreu. Skrifstofan er sú fimmta í röðinni í Asíu, en fyrir eru skrifstofur í Pusan í Suður-Kóreu, Dalian og Qingdao í Kína og Ho Chi Minh í Víetnam. Skrifstofur Samskipa eru þá orðnar 56 í 22 löndum. Lesa meira
 
unicef_2

Rausnarleg gjöf til uppbyggingar skólastarfs fyrir stríðshrjáð börn í Síerra Leóne - 12.4.2006

Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Samskipa og eiginkona hans Ingibjörg Kristjánsdóttir landslagsarkitekt gáfu á dögunum 36 milljónir króna, rúmlega 500 þúsund dollara, til menntaverkefnis Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF í Afríkuríkinu Síerra Leóne. Lesa meira
 
safarisamskip

Samskip og Safari Transport sameina krafta sína - 10.4.2006

Samskip og færeyska flutningsmiðlunin Safari Transport hafa sameinað krafta sína. Skrifað var undir viljayfirlýsingu um kaup Samskipa á 50% hlut í færeyska félaginu í Þórshöfn fyrir helgi. Kaupverðið er trúnaðarmál. Lesa meira
 

Samskip tilnefnd til alþjóðlegra gámaflutningaverðlauna - 23.3.2006

Samskip eru tilnefnd til verðlauna í flokknum CI Niche Carrier 2006 á alþjóðlegri verðlaunahátíð Containerisation International Awards 2006, sem samnefnt tímarit og eitt virtasta fagblaðið í flutningaþjónustu, stendur nú fyrir í fyrsta sinn. Tilefnið er 50 ára afmæli alþjóðlegra gámaflutninga en stefnt er að því að CI verðlaunahátíðin verði framvegis árlegur viðburður í greininni. Lesa meira
 
Image026

Landflutningar-Samskip styrkja Víking - 6.3.2006

Landflutningar-Samskip hafa undirritað samstarfssamning við handknattleiksdeild Víkings fyrir árið 2006. Lesa meira
 

Samskip annast innanlandsflutninga fyrir Húsasmiðjuna - 1.3.2006

Samskip hafa undirritað samning um innanlandsflutninga fyrir Húsasmiðjuna. Samningurinn felur í sér að Landflutningar-Samskip sjái um meirihluta aðkeypts innanlandsflutnings fyrir Húsasmiðjuna. Lesa meira
 
Ludurinn

Við unnum ! - 1.3.2006

Ímark, félag markaðsfólks á Íslandi, verðlaunaði nýverið Samskip fyrir boðskortið sem sent var út vegna jólaboðs Samskipa 2005. Fékk boðskortið verðlaun í flokknum markpóstur. Lesa meira
 

Átta skip í flutninga fyrir Áburðarverksmiðjuna - 27.2.2006

Samskip hafa undirritað samning við Áburðarverksmiðjuna um flutning á 30.000 tonnum af áburði frá Tallinn í Eistlandi til Íslands. Áætlað er að átta skip af ýmsum stærðum þurfi í verkefnið. Lesa meira
 
Aðkoma að Vörumiðstöð Samskipa við Kjalarvog

Aðkoma að Vörumiðstöð Samskipa við Kjalarvog - 24.2.2006

Þann 1. mars verður tekin í notkun aðkomustýring að Vörumiðstöð Samskipa við Kjalarvog. Aðgangi verður stýrt í gegnum biðraðakerfi, hvort sem um er að ræða vörumóttöku Landflutninga við suðurhlið eða vöruafgreiðslu innflutnings, Vörumiðstöðvar og Jóna Transport við austurhlið. Lesa meira
 

Nýr samstarfsaðili í Austurlöndum fjær - 24.2.2006

Samskip hafa samið við nýjan samstarfsaðila, Ebrex, um flutninga á heilgámum frá Austurlöndum fjær. Við þetta styrkist flutninganet og öryggi þjónustu Samskipa frá þessum heimshluta umtalsvert. Lesa meira
 
Áfangastaður 2

Óvenjulegt listaverk afhjúpað í höfuðstöðvum Samskipa - 23.2.2006

Listaverkið "Áfangastaður" eftir Finn Arnar var afhjúpað við hátíðlega athöfn í anddyri nýja Samskipahússins í gær en það var unnið sérstaklega fyrir félagið með þessa staðsetningu í huga. Lesa meira
 
gjof2

Afhentu langveikum börnum 150 þúsund krónur - 17.2.2006

Áhöfn Arnarfells, áætlunarskips Samskipa, afhenti í gær Rjóðrinu, hvíldarheimili fyrir langveik börn, fjárstyrk að upphæð kr. 150 þúsund krónur. Það var Guðrún Ragnarsdóttir frá Rjóðrinu sem tók við peningunum. Lesa meira
 
Ronja 2

Fullt hús á Ronju ræningjadóttur - 13.2.2006

Fullt hús varð á sérstakri forsýningu Borgarleikhússins fyrir starfsfólk Samskipa og fjölskyldur þeirra sl. laugardag en Samskip buðu starfsfólki á sýninguna. Lesa meira
 

Nýtt vöruhús í Norfolk - 1.2.2006

Frá og með 1. febrúar 2006 munu Samskip Inc. í Norfolk hýsa vörur viðskiptavina í nýju vöruhúsi. Það er fyrirtækið Norfolk Warehouse Distribution Centers sem mun sjá um hýsingu fyrir viðskiptavini Samskipa. Lesa meira
 
RTM2

Nýjar höfuðstöðvar í Rotterdam - 30.1.2006

Skrifstofur Samskipa og Geest í Rotterdam munu sameinast í nýrri skrifstofubyggingu í byrjun árs 2007. Frystiflutningastarfsemin mun áfram verða á sama stað innan Kloosterboer. Lesa meira
 
Lysbox

Bættar siglingar Samskipa milli Noregs og Rotterdam - 4.1.2006

Geest North Sea Line, dótturfyrirtæki Samskipa, býður nú upp á tíðari gámasiglingar milli Noregs og Rotterdam í kjölfar samstarfssamnings við DFDS Lys Line. Lesa meira
 

Samskip styrkja stöðu sína í fiskflutningum innanlands: - 3.1.2006

Kynna nýtt og betra fiskflutningakerfi í kjölfar kaupa á fiskdreifingarfyrirtækinu Lífæð. Gengið hefur verið frá kaupum Samskipa á flutningahluta fiskdreifingarfyrirtækisins Lífæðar. Hefur starfsemin verið sameinuð fiskflutningakerfi Landflutninga-Samskipa í nýju og endurbættu kerfi þar sem boðið er upp á samhæfða flutningskeðju, allt frá skipi eða fiskmarkaði og heim að dyrum kaupandans. Lesa meira
 

Fleiri fréttir






Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica