Hjónin Ingibjörg Kristjánsdóttir landslagsarkitekt og Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Samskipa, hafa stofnað velgerðarsjóð og leggja honum til einn milljarð króna í stofnframlag. Tekjum sjóðsins, sem eru arður og vaxtatekjur af stofnfé, verður annars vegar varið til ýmissa verkefna í þróunarlöndum og hins vegar til að göfga mannlíf á Íslandi með því að styrkja verkefni á sviði menningar, mennta og lista í samræmi við samþykktir sjóðsins og ákvörðun sjóðsstjórnar hverju sinni. Ætla má að árlega verði til ráðstöfunar 100-150 milljónir króna.
Lesa meira