Beint í leiðarkerfi vefsins.
Á sjötta tug erlendra starfsmanna Samskipa voru útskrifaðir úr íslenskunámi miðvikudaginn 4. júní. Um 70 nemendur hafa stundað nám í íslensku á vegum félagsins í vetur.
Mesta magn sem lestað hefur verið í áætlunarskip á vegum Samskipa var í útflutningi í síðustu viku. Þá fór Hvassafellið frá Færeyjum með um 10.100 tonn af fiski og áli (að meðtöldum gámaþunga) lestuð í skipið.
Mikill fjöldi viðskiptavina og annarra sýningargesta á sjávarútvegssýningunni í Brussel hefur komið við á bás Samskipa og gætt sér á kaffi og rætt málin.
Lesa meira
Stærsta sjávarútvegssýning í heimi, sem samanstendur af systursýningunum European Seafood Exposition og Seafood Processing Europe, verður haldin í Brussel dagana 22.-24. apríl nk. Að venju taka Samskip þátt í sýningunni og kemur starfsfólk Samskipa víða að til að hitta viðskiptavini.