Beint í leiðarkerfi vefsins.
Vinnslustöðin í Vestmannareyjum afhenti í dag Fjölskylduhjálp Íslands og Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur að gjöf samtals 900 kg af humri til dreifingar meðal skjólstæðinga samtakanna fyrir jólin. Landflutningar-Samskip tóku að sér að flytja humarinn til Reykjavíkur án endurgjalds, geyma hann hjá Samskipum og flytja á dreifingarstaði þegar afhenda á vöruna.
Lesa meira
Fjölmargir viðskiptavinir og velunnarar Samskipa lögðu leið sína í jólaboð Samskipa sem haldið var á Kaffi Reykjavík síðastliðinn föstudag.
Lesa meira
Frystigeymslur Samskipa í Álasundi og Rotterdam fá nýtt nafn frá og með 1. desember nk. Geymslurnar munu heita FrigoCare, en þær hafa verið í eigu Samskipa frá árinu 2005 en reknar undir nafni fyrri eigenda Kloosterboer, þar til nú.
Lesa meira
Samskip hafa ákveðið að í stað þess að senda viðskiptavinum jólakort fyrir komandi jól renni andvirði þeirra til Fjölskylduhjálpar Íslands. Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa, kveðst þess fullviss að viðskiptavinir kunni bæði að virða og meta þessa ákvörðun félagsins og sendir þeim hugheilar jólakveðjur frá Samskipum.
Lesa meira
Helgafellið kemur til Reykjavíkur miðvikudaginn 16. desember (ferð 0949 HEG) og fer aftur (ferð 0951 HEG) föstudaginn 18. desember kl. 00.00 (aðfaranótt föstudagsins) til Vestmannaeyja og þaðan áleiðis til Evrópu. Helgafellið mun stoppa í Cuxhaven yfir hátíðirnar en Arnarfellið kemur til Reykjavíkur þriðjudaginn 22. desember (ferð 0950 ARN) og fer aftur frá Reykjavík föstudaginn 1. janúar 2010.
Guðríður Birna Ragnarsdóttir heitir hún – í daglegu tali kölluð Birna – og hóf störf hjá Samskipum fyrir rúmlega 23 árum. Hún er fædd á Skaganum, kom í bæinn í skóla, gifti sig og fór að vinna hjá Hafskip. Það var svo 1986 að hún flutti sig yfir í farmskrá Samskipa og ekki leið á löngu þar til hún tók þar við stjórnartaumum sem hún hefur ekki sleppt síðan. Birna er nýjasti viðmælandi Samskip.is í Viðtalinu.
Lesa meiraSamskip fluttu nýlega 143 fleti með steyptum plötum frá verksmiðju í Tékklandi til byggingasvæðis í Skotlandi, þar sem þau verða nýtt til byggingar bílastæðabyggingar. Eftir mikla leit að réttu lausninni í flutningum á plötunum komu flutningar á fletum með Samskipum best út, en m.a. höfðu verið kannaðir flutningar með bílum á vegum og með ferjum.
Lesa meira
Hann er þekktur fyrir smitandi hlátur og á það til að bresta í söng við ýmis tækifæri. Hann er metnaðargjarn og þrautseigur, hann er Kristján Tryggvi Högnason, forstöðumaður vöruhúsadeildar og er viðmælandi okkar að þessu sinni í Viðtalinu.
Lesa meira
Silver Sea, norskt skipafélag sem er að helmingshluta í eigu Samskipa hefur nýlega bætt tveimur frystiskipum í flota sinn. Skipin voru áður í eigu Eimskips og hétu þá m/s Dalfoss og m/s Langfoss. Þau heita nú m/s Silver River og m/s Silver Lake. Eru skipin tekin á þurrleigu til næstu ára með möguleika á kauprétti síðar
Knút Lützen er rúmlega fertugur Þórshafnarbúi, stofnandi og eigandi Safari Transport í Þórshöfn í Færeyjum. Hann stofnaði fyrirtækið 1995 eftir að hafa unnið í 6 ár við flugflutninga og kynnst greininni vel. Knút er viðmælandinn í Viðtalinu að þessu sinni.
Samskip tóku þátt í sjávarútvegssýningunni Fish Expo í Færeyjum dagana 27.-29. maí sl. Að þessu sinni var sýningin flutt inn í hjarta Þórshafnar og gaf það góða raun.
Lesa meiraMikill uppgangur er hjá frystivörumiðstöð Samskipa í Noregi og hefur velta félagsins aukist um 40% frá því það var sett á laggirnar fyrir tveimur árum og er umsetningin nú um 80 þúsund tonn á ári.
Lesa meiraÍ síðustu viku unnu sérfræðingar frá þróunardeild þýska vélaframleiðandans MAN að því að koma fyrir tilraunabúnaði í aðalvél Helgafellsins sem á að bæta brennslu og minnka mengun og eyðslu.
Ellefu flutningatæknar voru útskrifaðir úr Flutningaskóla Samskipa við hátíðlega athöfn í dag að viðstöddum forseta Íslands og fleiri góðum gestum. Skólinn, sem starfræktur er í samstarfi við Mími-símenntun, er sérhæfður fyrir bílstjóra Samskipa og starfsfólk í vöruhúsum og á gámavelli félagsins.
Fimm norskar hjólhýsakonur, sem setja munu sterkan svip á Listahátíð í Reykjavík, eru nú á leið til landsins með Samskipum.
Lesa meiraTrackWell og Landflutningar - Samskip hafa undirritað samning um innleiðingu á TrackWell Flota fyrir bílaflota Landflutninga og undirverktaka. TrackWell Floti er hluti af lausn sem í daglegu tali nefnist TrackWell Forðastýring eða TrackWell MRM (Mobile Resource Management).
Lesa meira
Samskip taka nú sem fyrr þátt í stærstu sjávarútvegssýningu heims í Brussel en sýningin verður opnuð á morgun, þriðjudag og stendur fram á fimmtudag.
Lesa meiraÞjónustustaðlar akstursþjónustu Samskipa fyrir inn- og útflutning hafa tekið breytingum. Er akstur nú framkvæmdur degi eftir að beiðni berst og er þar með fallið frá tveggja daga reglunni, sem verið hefur í gildi frá því á haustmánuðum.
Lesa meiraFrá og með 1. apríl nk. mun fyrirkomulag flutninga Samskipa til og frá Noregi breytast. Ástæða þessa er að þjónusta lestarinnar, sem flutt hefur sendingar fyrir Samskip á milli Osló í Noregi og Varberg í Svíþjóð, er að taka breytingum.
Lesa meira
Hvassafellið, ferð 0908 HVA, mun hafa viðkomu í Reykjavík fimmtudaginn 26. febrúar á leiðinni frá Rotterdam. Brottför frá Reykjavík er fimmtudaginn 26. febrúar.
Hreinsun Hvassafelli er nú lokið. Skipið verður á Reyðarfirði á mánudaginn 26. janúar og tekur þar við af Akrafelli.
Lesa meira