Samskip - Fréttir

Jólakveðja - 24.12.2010

vefjolakort_2010

Samskip óska viðskiptavinum sínum, starfsfólki og landsmönnum öllum gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á nýju ári með þökk fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða.

Lesa meira
 

Vinnslustöðin færði Jólaaðstoðinni humar og saltsíld og Landflutningar-Samskip sáu um flutningana - 17.12.2010

vinsl0013

Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum færði Jólaaðstoð 2010 í dag að gjöf humar og saltsíld til dreifingar fyrir jólin, alls 2.000 poka af humri (450 gr. í hverjum poka) og 2.000 eins lítra fötur af síld. Landflutningar-Samskip fluttu humarinn og síldina til Reykjavíkur endurgjaldslaust. Vörurnar eru geymdar hjá Samskipum og fluttar á dreifingarstaði í samræmi við óskir Jólaaðstoðar.

Lesa meira
 

Sæfari áfram hjá Samskipum - 16.12.2010

IMG_7196_nymaladur_2010Samskip hafa samið við Vegagerðina um framlengingu á rekstrarsamningi vegna Grímseyjarferjunnar Sæfara.

Gildir samningurinn til loka árs 2011. Ferðatíðni verður óbreytt eða þrjár ferðir á viku allt árið á milli Dalvíkur og Grímseyjar og tvær ferðir á viku á milli Dalvíkur og Hríseyjar.

Lesa meira
 

Landflutningar styðja Mæðrastyrksnefnd og Jólaaðstoð 2010 - 23.11.2010

sam8559Þeir sem senda jólapakkana sína með Landflutningum þetta árið leggja jafnframt lóð sitt á vogarskálarnar til hjálpar þeim sem minna mega sín. Allt flutningsgjald hvers pakka - 890 krónur - rennur óskipt til Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur og Jólaaðstoðar 2010. Það er samstarfsverkefni Mæðrastyrksnefndar, Hjálparstarfs kirkjunnar, Rauða krossins í Reykjavík og Hjálpræðishersins um land allt. Fyrirframgreiðsla að upphæð tvær milljónir króna var afhent formanni Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur í dag.

Lesa meira
 

Strákarnir læra á stuðtækin - 12.10.2010

hjartastudtaeki_ValdiEins og sagt var frá nýlega ákváðu Landflutningar – Samskip að setja alsjálfvirk hjartastuðtæki í flutningabíla á helstu akstursleiðum félagsins. Nú eru fyrstu tækin komin í bílana og að því tilefni var haldið námskeið fyrir bílstjóra.

Lesa meira
 

Nýr yfirmaður hjá Samskipum í Færeyjum - 8.10.2010

christian_danielsen

Þann 1. nóvember nk. tekur Christian Danielsen við sem yfirmaður skrifstofu Samskipa í Færeyjum. Christian er með meistaragráðu í viðskiptafræðum frá Danmörku og hefur undanfarið gegnt stöðu fjármálastjóra hjá Articon í Þórshöfn. Christian tekur við af Joel undir Leitinum sem hefur stýrt skrifstofu Samskipa frá upphafi en hann hverfur til annarra starfa.

Lesa meira
 

Hjartastuðtæki í flutningabílum Landflutninga-Samskipa auka öryggi vegfarenda á þjóðvegum landsins - 24.9.2010

hjartastudtaeki

Í tilefni alþjóðlega Hjartadagsins, sem haldinn er í tíunda sinn á heimsvísu á sunnudaginn, hafa Landflutningar-Samskip ákveðið að koma fyrir alsjálfvirkum hjartastuðtækjum í flutningabílum á öllum helstu akstursleiðum félagsins. Þetta er gert til að auka almennt öryggi vegfarenda en hver mínúta getur skipt máli ef einstaklingur fær hjartastopp og þá er mikilvægt að hafa réttan búnað við höndina.

Lesa meira
 

Björgunarbátur fluttur til Vestmannaeyja til æfinga - 30.8.2010

IMG_3619

Á föstudaginn var fluttu Samskip Stefni, björgunarbát Hjálparsveitar Skáta í Kópavogi, til Vestmannaeyja með Arnarfellinu.  Tilefni flutningsins var sameiginleg sjóæfing með Björgunarsveitinni í Vestmanneyjum og fleiri sveitum sem fór fram á laugardeginum í góðu veðri. 

Lesa meira
 

Fjölmenni á golfmóti Samskipa - 26.8.2010

golfmot_2010_3Golfmót Samskipa 2010 var haldið á Urriðavelli 20. ágúst sl. Mótið var alveg fullt og komust færri að en vildu. Spilað var fjögurra manna Texas Scramble og voru 25 holl ræst út í einu.

Lesa meira
 

Silver Sea og Green Reefers í samstarf - 5.7.2010

Silver Sea lógó á hvítum grunni

Silver Sea AS,sem er í 50% eigu Samskipa, og Green Reefers AS munu hefja samstarf með stofnun fyrirtækisins Silver Green AS, en fyrirtækið er í helmings eigu hvors félags.

Lesa meira
 

Samskip styrkja björgunarsveitir - 9.6.2010

IMG_06442Samskip aðstoðuðu nýlega Björgunarsveitirnar Geisla og Gerpir á Austfjörðum við innflutninga á tveimur nýjum björgunarbátum fyrir Austurland.  Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar bátarnir voru teknir í notkun.

Lesa meira
 

13 flutningatæknar útskrifast úr Flutningaskóla Samskipa - 21.5.2010

Samskip_200510_JON5238Þrettán starfsmenn voru útskrifaðir sem flutningatæknar úr Flutningaskóla Samskipa við hátíðlega athöfn í gær að viðstöddum Kristjáni L. Möller,samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og fleiri góðum gestum. Skólinn, sem starfræktur er í samstarfi við Mími-símenntun, er sérhæfður fyrir starfsfólk Samskipa í vöruhúsum, á gámavelli og bílstjóra félagsins og er þetta er í annað sinn sem útskrifað er úr skólanum.

Lesa meira
 

Silver Sea og Green Reefers undirrita viljayfirlýsingu um samstarf - 19.5.2010

 

Silver SeaSilver Sea AS, norskt frystiflutningafyrirtæki í helmingseigu Samskipa, og fyrirtækið Green Reefers AS hafa undirritað viljayfirlýsingu um samstarf fyrirtækjanna.  Telja báðir aðilar að með samstarfinu sé hægt að veita betri þjónustu til viðskiptavina en jafnframt ná fram samlegðaráhrifum með aukinni skilvirkni í rekstri, lægri kostnaði við skip og hafnir. 

Lesa meira
 

Samskip í Brussel - 27.4.2010

IMG00102

Samskip taka nú þátt í sjávarútvegssýningunni í Brussel, sem er sú stærsta sinnar tegundar í heiminum.  Er þetta í fimmtánda sinn sem Samskip taka þátt en sýningin var opnuð í morgun og fer vel af stað.

Lesa meira
 

Tilkynning frá Samskipum vegna flutninga til Asíu - 19.4.2010

Picture_072

Í kjölfar efnahagshrunsins varð mikill samdráttur í flutningum í heiminum. Skipafélög drógu úr framboði til að mæta taprekstri. Mest urðu áhrifin á flutninga til og frá Asíu. Í dag er staða mála þannig að verð hefur hækkað gífurlega á flutningum frá Evrópu til Asíu ásamt því að eftirspurn hefur aukist umfram framboð. Þetta hefur í för með sér að erfitt getur reynst að fá gáma undir flutning til Asíu og einnig að fá pláss í skipum.

Lesa meira
 

Landflutningar-Samskip opna nýjan vef - 13.4.2010

nyr_landflutningavefur_2010

Landflutningar-Samskip hafa opnað nýjan vef á slóðinni http://www.landflutningar.is/ Er nýi vefurinn léttari í útliti og hnitmiðaðri í uppbyggingu.  Einnig hafa nokkrar nýjungar bæst við og má helst nefna skráningu fylgibréfa í gegnum vefinn, beint samband við þjónustufulltrúa auk þess sem framsetning áætlana og afgreiðslustaða hefur verið einfölduð til muna.

Lesa meira
 

Aurora velgerðasjóður ráðstafar 100 milljónum króna til fjögurra verkefna á Íslandi og í Afríku - 22.3.2010

Styrkthegar-og-stjorn-Auroru-2010

Stjórn Auroru velgerðasjóðs kynnti í gær, 16. mars þá ákvörðun sína að veita alls 100 milljónir króna til fjögurra verkefna á sviði mannúðar, mennta og menningar hérlendis og í Afríkuríkinu Síerra Leóne.

Lesa meira
 

Rúmlega sextíu tonna varmaskiptir hífður frá borði - 24.2.2010

IMG_8512

Rúmlega sextíu tonna varmaskiptir fyrir Hellisheiðarvirkjun var hífður úr Arnarfellinu í morgun í blíðskaparveðri. Er skiptirinn um 14 metrar á lengd og kemur frá Cuxhaven í Þýskalandi en hann verður fluttur upp á Hellisheiði í næstu viku.

Lesa meira
 

Samskip áfram einn af helstu stuðningsaðilum HSÍ - 18.1.2010

IMG_3986Samskip, sem hafa í mörg ár verið einn af helstu stuðningsaðilum Handknattleikssambands Íslands, hafa framlengt samstarfssamning félagsins við HSÍ um tvö ár, eða til ársloka 2011.

Lesa meira
 

Fleiri fréttir






Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica