Samskip - Fréttir
sjavarutvegsverdlaun01

Samskip styrktaraðili Íslensku sjávarútvegsverðlaunanna

29.9.2011

Íslenska sjávarútvegssýningin, sem haldin er á þriggja ára fresti, hóf göngu sína árið 1984 og er hún nú orðin umfangsmesta sýningin í greininni á norðurslóðum. Afhending Íslensku sjávarútvegsverðlaunanna er orðin fastur liður á sýningunni en þau eru veitt þeim sem þykja hafa skarað fram úr í fiskveiðum og sjávárútvegi, bæði á Íslandi og erlendis. Veitt eru 17 verðlaun hverju sinni og mega vinningshafarnir nota merki verðlaunanna í kynningarefni sínu.

Samskip voru einn af styrktaraðilum Íslensku sjávarútvegsverðlaunanna að þessu sinni og styrktu flokkinn Framúrskarandi útgerð. Þar sigraði HB Grandi og kom það í hlut Ásbjörns Gíslasonar, forstjóra Samskipa, að afhenda Eggerti Benedikt Guðmundssyni forstjóra verðlaunin.

Aðrir sem fengu Íslensku sjávarútvegsverðlaunin 2011 voru Sturla Þórðarson, skipstjóri í Neskaupstað, í flokknum Framúrskarandi skipstjóri, Síldarvinnslan í flokknum Framúrskarandi fiskvinnsla og Guðrún Lárusdóttir, framkvæmdastjóri Stálskipa í Hafnarfirði, í flokknum Framúrskarandi framlag til íslensks sjávarútvegs. Hampiðjan fékk verðlaun í flokknum Framúrskarandi íslenskur framleiðandi – veiðar (stærri fyrirtæki) og einnig í flokknum Besta nýja varan á sýningunni. Trefjar hlaut verðlaunin í flokknum Framúrskarandi íslenskur framleiðandi – veiðar (smærri fyrirtæki), Héðinn fékk verðlaunin í flokknum Framúrskarandi íslenskur framleiðandi – fiskivinnslubúnaður og Vélfag á Ólafsfirði hlaut verðlaunin í flokknum Framúrskarandi íslenskur framleiðandi – fiskvinnslubúnaður (smærri fyrirtæki). Marel varð fyrir valinu í flokknum Framúrskarandi framleiðandi á heildina litið. Einnig voru veitt verðlaun í flokkum erlendra fyrirtækja og fyrir bestu sýningarbásana.

Senda grein





Logo