Mæðrastyrksnefnd í Reykjavík fær humar og saltsíld
Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum færði Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur í dag að gjöf humar og saltsíld til dreifingar fyrir jólin, alls 2.000 poka af humri (450 gr. í hverjum poka) og 2.000 eins lítra fötur af síld.
Landflutningar-Samskip fluttu vörurnar til Reykjavíkur endurgjaldslaust. Þær eru geymdar hjá Samskipum og verða fluttar til dreifingar að Fiskislóð 14.
Guðmundur Örn Gunnarsson, stjórnarformaður VSV, Kristinn Hjálmarsson, sölustjóri VSV, og Jörundur Jörundsson, framkvæmdastjóri innanlandssviðs Samskipa, afhentu Ragnhildi G. Guðmundsdóttur formanni og Guðlaugu Jónínu Aðalsteinsdóttur, varaformanni Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, gjöfina og létu þess getið að með þessu framlagi fylgdu innilegar jólakveðjur og þakklæti til til aðstandenda Mæðrastyrksnefndar fyrir fórnfúst starf um árabil í þágu þeirra sem væru hjálpar þurfi.
• Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur úthlutar jólaglaðningi sínum í dag og næstu tvo daga (mánudag 19. desember til miðvikdags 21. desember) að Fiskislóð 14 í Reykjavík kl. 10:00-12:00 og 13:00-17:00.
• Að baki Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur standa Kvenréttindafélag Íslands, Thorvaldsensfélagið, Hvítabandið, Félag háskólakvenna, Hvöt, félag sjálfstæðiskvenna, Kvenfélag Alþýðuflokksins og Félag framsóknarkvenna.
Á mynd frá vinstri:
Guðlaug Jónína Aðalsteinsdóttir, Guðmundur Örn Gunnarsson, Ragnhildur G. Guðmundsdóttir, Jörundur Jörundsson og Kristinn Hjálmarsson

