Samskip - Fréttir
Björgunarbátur til Grindavíkur
Nýlega aðstoðuðu Samskip Björgunarsveitina í Grindavík við að eignast björgunarbát sem staðsettur verður í Grindavík
Samskip sáu um að flytja bátinn frá Bretlandi þaðan sem báturinn var keyptur.
Samskip hafa um árabil stutt Slysavarnafélagið Landsbjörgu, meðal annars með flutningi á björgunarbátum af ýmsum stærðum og gerðum, sem staðsettir eru víðsvegar um landið, til að gæta öryggis sjófarenda.
Einnig hafa Samskip aðstoðað ýmsar aðrar björgunarsveitir á landinum á margvíslegan hátt, til dæmis með flutningum og láni á gámum.

