Svarbox – samband við fleiri deildir – aðgengilegt frá heimasíðu
Samskip bæta nú við fleiri deildum sem beintengdar eru við Svarboxið, en það gefur viðskiptavinum tækifæri á að komast milliliðalaust í samband við þjónustuaðila til að svara fyrirspurnum og leysa úr málum. Nú er það fjárreiðudeildin sem bætist við en viðskiptaþjónusta inn- og útflutnings hefur um nokkurt skeið notað sér Svarboxið sem viðbót við aðra þjónustumöguleika. Áður var Svarboxið einungis á þjónustuvefnum, en núna verður Svarboxið opið fyrir alla og staðsett á heimasíðu Samskipa www.samskip.is
Viðskiptavinir geta valið hvaða deild þeir tengjast og munu því komast beint í samband við þá deild sem leyst getur úr málunum. Þetta er afar einföld leið til samskipta og er bara smellt á Svarbox, valið Samskip eða Landflutningar, svo er valin deild og þá kemst á samband. Fyrirspurn er rituð á sinn stað og vinnsla fer í gang. Það er von okkar að þessi viðbótarþjónusta komi sér vel og verði vel nýtt af viðskiptavinum.

