Samskip - Fréttir
Ísheimar

Stækkun Ísheima lokið

27.6.2003

Fullkomin fjölnota frystivörumiðstöð.

Ísheimar - ný og endurbætt fyrstivörumiðstöð Samskipa á Holtabakka var formlega opnuð við hátíðlega athöfn í dag, rúmlega hálfu ári eftir að fyrsta skóflustungan var tekin að byggingunni. Nýja frystivörugeymslan er sérhönnuð til að mæta þörfum vaxandi flota fjölveiðiskipa og með tilkomu hennar geta Samskip stóraukið þjónustu sína við sjávarútveginn í heild.

"Ég þori að fullyrða að með tilkomu nýju frystigeymslunnar hér á Holtabakkanum erum við komin með bestu og fjölbreyttustu þjónustuna við fiskveiðiflotann sem finnst hér á landi ¿ og þótt víðar væri leitað," segir Knútur G. Hauksson forstjóri. "Þetta er í raun ný tegund af þjónustu hjá okkur. Í eldri hluta frystivörumiðstöðvarinnar er varan öll í rekkum en nýja byggingin er hönnuð fyrir stærri sendingar. Þar verður allri vöru frístaflað, sem er hagkvæmara með tilliti til ýmissa fisktegunda."

Samhliða byggingu nýju frystigeymslunnar hefur gámatenglum verið fjölgað og verður öll vara plöstuð og merkt með strikamerki áður en henni verður komið fyrir í geymslunni. Þá verður öll losun og lestun frystiflutningsskipa, flutningabíla og gáma einfaldari því nýja geymslan er í sömu hæð og bryggjan, sem auðveldar akstur lyftara og annarra ökutækja á svæðinu.

Bygging fjölnota frystivörumiðstöðvar hefur lengi staðið til hjá Samskipum og fyrir rúmu ári var ákveðið að byggja 3 þúsund tonna viðbót við frystigeymslu félagsins á Holtabakka. Samið var við Línuhönnun um að sjá um alútboð á byggingu geymslunnar og var hagstæðasta tilboðið í verkið, 263 milljónir króna, frá Keflavíkurverktökum. Arkitektastofan Yrki hannaði bygginguna en um burðarþol og lagnir sá verkfræðistofan Hönnun. Frystikerfi ehf. hafði umsjón með vélarbúnaði, Samey annaðist raflagnir og Línuhönnun hafði með höndum eftirlit með verkinu fyrir hönd Samskipa.

Miklar breytingar hafa einnig verið gerðar á hafnarsvæði Samskipa við Vogabakka, samhliða byggingu nýju frystigeymslunnar. Er öll aðstaða til löndunar, lestunar og annarar þjónustu til fyrirmyndar eftir að hafnarbakkinn var lengdur í 500 metra og innsiglingin dýpkuð. Geta þrír togarar ásamt flutningaskipi Samskipa nú legið samtímis við Vogabakka og tveir togarar við Holtabakka, sem auðveldar mjög alla afgreiðslu og þjónustu við flotann.

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica