Ný skip Samskipa
Ný skip Samskipa
-leysa af hólmi Arnarfell og Helgafell árið 2005
Samskip og þýska skipasmíðastöðin J.J. Sietas í Hamborg hafa undirritað samning um smíði tveggja gámaskipa sem verða tilbúin til afhendingar í febrúar og mars árið 2005. Er þeim ætlað að leysa af hólmi núverandi skip, Arnarfell og Helgafell, sem eru nú þegar orðin of lítil.
Nýju skipin verða þýsk gæðasmíði og sérstaklega hönnuð til að fullnægja kröfum Samskipa og þeirra viðskiptavina. Er miðað við að þau geti þjónað sömu höfnum og núverandi skip félagsins.
Skipin verða svokölluð "græn skip," þ.e. olíutankar liggja ekki beint að sjó, sem er gert til að lágmarka hættu á olíumengun við strand eða árekstur. Flutningsgeta hvors skips um sig verður 908 tuttugu feta gámaeiningar og burðargeta allt að 10.950 tonn. Lengd hvors skips verður 137,5 metrar og ganghraði um 18,2 hnútar og verða þau búin öflugum þverskrúfum til að stjórnhæfni þeirra verði eins og best verði á kosið. Aðalvélar verða 8.400 kw, ætlaðar til að brenna þungri olíu, en einnig útbúnar með öflugum ásrafölum. Þá verða skipin búin til að flytja helstu gámaeiningastærðir, s.s. 20-30-40 og 45 feta lengdir, og með að lágmarki 200 tengla fyrir frystigáma. Tveir öflugir gámakranar verða á hvoru skipi.
Aðbúnaður áhafnar verður eins og best verður á kosið, eins manns herbergi með sér snyrtingu fyrir alla í áhöfninni.
Nánari upplýsingar veitir:
Kristján Ólafsson. deildarstjóri skipareksturs Samskipa, í síma 569-8651

