Samskip - Fréttir
Vörumiðstöð

Samskip reisa stærstu vörumiðstöð landsins

Samið við Ístak um byggingarframkvæmdir

5.8.2003

Samningar hafa tekist við Ístak um byggingu á nýrri 25 þúsund fermetra Vörumiðstöð Samskipa sem á að rísa á hafnarsvæði félagsins við Kjalarvog. Samkomulag um verkið var undirritað í dag en verklok eru fyrirhuguð í endaðan september á næsta ári. Áætlaður kostnaður við byggingu vörumiðstöðvarinnar með virðisaukaskatti er rúmlega 2,1 milljarður króna.

"Þetta nýja hús skapar mikla möguleika til hagræðingar í vörustjórnun og rekstri því þar verða undir einu þaki flæðilager fyrir alla vörudreifingu innanlandskerfis Samskipa, móttaka og afhending fyrir inn- og útflutning og tollvörugeymsla sem skapar aukin þægindi og hagræðingu fyrir viðskiptavini sem nýta sér heildarþjónustu Samskipa. Þannig munum við geta hámarkað nýtingu húsnæðis, tækja og mannafla og boðið betri og jafnvel ódýrari þjónustu en nú er hægt," segir Knútur G. Hauksson, forstjóri Samskipa.

Vörumiðstöð Samskipa verður sú stærsta sinnar tegundar hér á landi, gólfflöturinn samsvarar ríflega þremur knattspyrnuvöllum, og leysir hún af hólmi starfsemi sem til þessa hefur verið rekin á fimm mismunandi stöðum. Byggingin verður stálgrindarhús með steyptu gólfi og þar verður öll nýjasta tækni í vöruhúsaþjónustu nýtt til hins ýtrasta. Allar vörur verða t.d. strikamerktar og öflugt tölvukerfi, þar sem m.a. handtölvur verða notaðar til að skrá allar hreyfingar á vörum í húsinu, mun tryggja skilvirkt vöruflæði og rekjanleika vörunnar.

Átta ár eru frá því að Samskip byrjuðu að bjóða upp á vöruhúsaþjónustu og hefur hugmyndin að vörumiðstöðinni verið í þróun í nokkur ár hjá félaginu, í kjölfar stöðugt vaxandi eftirspurnar eftir slíkri þjónustu.

Til að undirstrika enn frekar mikilvægi hinnar nýju Vörumiðstöðvar Samskipa og þau kaflaskil sem hún skapar í þjónustu félagsins hefur verið hannað sérstakt merki Vörumiðstöðvarinnar, til að auðkenna alla þjónustu sem þar verður í boði.

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica