Tekið til með bros á vör og höfuðfat!
Gestir sem lagt hafa leið sína til Samskipa í dag hafa eflaust margir velt því fyrir sér hvers vegna starfsmenn fyrirtækisins eru flestir með höfuðfat í dag - í glampandi sól og sumaryl, amk. sunnan heiða!
Skýringin er sú að árlegur tiltektardagur Samskipa er í dag, 16. maí, og þema dagsins er "höfuðfat". Mættu starfsmenn allmennt til vinnu í morgun með hatta og húfur af öllum stærðum og gerðum og margir gengu enn lengra og skrýddust allskyns búningum og höfðu með sér tilheyrandi leikmuni.
Þá létu menn heldur ekki sitt eftir liggja í tiltektinni enda undirbúningsnefnd búin að hamra á því alla síðustu viku að starfsmenn yrðu að standa sig. Var það gert með því að senda út daglega "boðorð" tiltektadagsins en í þjónustusýn Samskipa er kveðið á um að hafa skuli "snyrtimennsku og hreinlæti í fyrirrúmi bæði í klæðaburði og starfsumhverfi". Til að kveða upp úr um hverjir sköruðu framúr var sérstök dómnefnd að störfum sem lagði mat á árangur starfsmanna við að gera hreint og fallegt í kringum sig og í lok dags var úthlutað verðlaunum fyrir tiltekt, mestu framfarir, búninga ofl. Var almenn ánægja með hvernig til tókst á hinum árlega tiltektardegi Samskipa.

