Samskip - Fréttir

Baltic leið 9
Baltic

Yfirtaka á siglingaleiðum hollenska skipafélagsins NCL

2.9.2003


Samskip styrkja stöðu sína á siglingaleiðum milli Eystrasaltslanda, Svíþjóðar og Bretlands

Samskip hafa tekið yfir rekstur siglingakerfis hollenska skipafélagsins Northern Continental Lines bv (NCL) sem stundað hefur áætlunarsiglingar milli Lettlands, Svíþjóðar, Bretlands og Hollands. Verða tvö gámaflutningaskip í siglingum á þessari leið og munu dótturfyrirtæki Samskipa í Bretlandi, Svíþjóð og Benelúxlöndunum sinna umboðsmennsku fyrir reksturinn í viðkomandi löndum.

"Með þessu nýja siglingakerfi erum við að styrkja starfsemi okkar verulega á þessu markaðsvæði," segir Ásbjörn Gíslason forstjóri Samskipa. "Það er verið að stórefla þjónustu við Lettland og Rússland, sem jafnframt mun styrkja stöðu Samskipa á öðrum mörkuðum, eins og t.d. flutninga milli Svíþjóðar og Bretlands."

Skipin sem notuð verða á þessari nýju siglingaleið Samskipa, MV Adele og MV Carina, hafa bæði 202 gámaeininga flutningsgetu. Þau voru áður í rekstri hjá NCL.

Undanfarið ár hafa Samskip eflt umtalsvert flutningastarfsemi sína í Skandinavíu og Eystrasaltslöndunum. Með tilkomu þessara tveggja nýju skipa eru Samskip með níu skip í föstum áætlunarsiglingum milli Bretlands og meginlands Evrópu og hafna í Skandinavíu og Eystrasaltslöndunum. Fjögur gámskip eru í siglingum milli Eistlands, Bretlands og meginlands Evrópu á vegum Samskipa eftir að félagið keypti helmings hlut í eistneska skipafélaginu T&E ESCO Container Lines AS í upphafi þessa árs. Þá er eitt skip í siglingum á milli Noregs og Belgíu eftir að Samskip tóku yfir stóran hluta flutninga norska skipafélagsins La Line fyrir um tveimur vikum eftir að það félag var lýst gjaldþrota. Fyrir voru Samskip með tvö skip í siglingum milli meginlands Evrópu og Skandinavíu.

Samskip eru alhliða flutningafyrirtæki með 28 skrifstofur í 13 löndum, auk umboðsskrifstofa vítt og breitt um heiminn.

Nánari upplýsingar veitir:
Ásbjörn Gíslason forstjóri Samskipa
Símar: 0031-104-285-055
0031-610-917-145

Senda grein






Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica