Samskip - Fréttir

Ný siglingaleið milli Noregs og Benelúxlandanna

26.8.2003

Samskip hófu siglingar á nýrri gámaflutningaleið milli Belgíu, Hollands og Noregs á föstudaginn var og er það liður í að bæta enn frekar flutningaþjónustu félagsins milli Skandínavíu og Benelúxlandanna.

Siglt er frá Antwerpen í Belgíu á fimmtudegi til Rotterdam í Hollandi og áfram þaðan á föstudegi og komið til Oslóar á sunnudegi. Skipið hefur viðkomu í Larvík og Fredrikstad á mánudegi, áður en siglt er aftur til Antwerpen Belgíu.

Þessi nýja þjónusta Samskipa er viðbót við þær áætlunarsiglingar sem félagið býður upp á tvisvar í viku milli Rotterdam, Immingham, Larvíkur, Oslóar og Moss, í samstarfi við norska skipafélagið Lys-Line.

Nánari upplýsingar veita:
Björn Einarsson, framkvæmdastjóri SAMSKIP NV, í síma 0031 10 428 50
Ólafur E. Jóhannsson, framkvæmdastjóri SAMSKIP Norge AS, í síma 0047 69 24 96 20


Meðfylgjandi kort sýnir nýju gámaflutningaleiðina milli Noregs og Benelúxlandanna.

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica