Samskip - Fréttir

Larvík skrifstofur
Larvík skrifstofur

Samskip opna skrifstofu í Larvík í Noregi

7.10.2003

Samskip hafa opnað skrifstofu í Larvík í Noregi í framhaldi af því að félagið hóf siglingar á nýrri gámaflutningaleið milli Belgíu, Hollands og Noregs í ágústlok. Rekstur skrifstofunnar heyrir undir Ólaf E. Jóhannsson, framkvæmdastjóra Samskip Norege AS, í Moss.

Tveir starfsmenn, Morten Pettersen og Trond Thunberg, verða til að byrja með á skrifstofunni í Larvík og munu þeir m.a sjá um alla þjónustu Samskipa í Noregi vegna gámaflutninganna milli Oslóar, Larvíkur, Fredrikstad, Immingham, Antwerpen og Rotterdam. Vænta Samskip þess að reynsla þeirra og þekking á flutningamarkaðnum nýtist til að efla starfsemi félagsins enn frekar í Noregi .

Heimilisfang Samskip Norge As í Larvík er:

Larvik Havnesenter Revet 1
3263 Larvik
Sími: +47 33 14 00 42
Fax: +47 33 14 00 41

Senda grein






Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica