Samskip - Fréttir
Fyrrverandi starfsmenn í heimsókn hjá Samskipum
Í vikunni litu við hjá Samskipum fyrrverandi starfsmenn félagsins, sem komnir eru á eftirlaun. Það er árviss viðburður að þessum hópi er boðið til kaffisamsætis. Við þetta tækifæri gefst tími til að spjalla og spyrja og núverandi starfsmenn grípa tækifærið fegins hendi að sjá gamla vinnufélaga. Forstjórinn Knútur G. Hauksson sagði frá helstu verkefnum félagsins og hvað er framundan. Farið var í skoðunarferð um svæðið og m.a. skoðuð viðbótin við Ísheima og byggingarstaður fyrirhugaðra höfuðstöðva Samskipa-. Það er samdóma álit manna að þetta séu skemmtilegar samkomur og til eftirbreytni.


