Samskip veita viðurkenningar
Um nokkurt skeið hefur tíðkast hjá Samskipum að veita viðurkenningar til þeirra starfsmanna sem starfað hafa hjá félaginu í 25 og 40 ár. Þessar viðurkenningar eru veittar á árshátíð starfsmannafélagsins Samstarfs sem einmitt er haldin á morgun laugardaginn 11.október. Ákveðið var að tímabært væri að endurskoða reglur um starfsaldursviðurkenningar með það fyrir augum að verðlauna trúmennsku og dugnað strax við 10 ára starf fyrir Samskip. Framvegis verða veitt bronsmerki fyrir 10 ára starf, silfur- fyrir 25 ára starf og gullmerki fyrir 40 ára starf fyrir félagið.
Til þess að koma þessari reglu á var í dag veitt viðurkenning til allra þeirra starfsmanna sem unnið hafa hjá Samskipum í 10 ár og í allt að 24 ár. Það var glæsilegur hópur sem tók við bronsmerki félagsins og gjafabréfi á kvöldverð fyrir tvo á einum af glæsilegri veitingastöðum bæjarins. Að þessu tilefni sagði Knútur G. Hauksson forstjóri, að aldrei mætti gleyma mikilvægi góðra og tryggra starfsmanna og væri félagið að sýna starfsmönnum örlítinn þakklætisvott í dag og klappaði þeim lof í lófa.
Því næst var boðið upp á glæsilegt kaffihlaðborð sem allir nýttu sér í lok skemmtilegs vinnudags.

