Samskip annast flutninga fyrir Fosskraft vegna byggingar stöðvarhúss Kárahnjúkavirkjunar
Samskip munu annast alla vöruflutninga fyrir Fosskraft sf. vegna byggingar stöðvarhúss Kárahnjúkavirkjunar. Samningur þar að lútandi var undirritaður á dögunum af Hermanni Sigurðssyni aðstoðarstaðarstjóra frá Fosskrafti og Óskari Má Ásmundssyni sölustjóra innflutningsdeildar Samskipa.
Samningurinn felur í sér að Samskip annast alla flutninga á þeim vörum sem Fosskraft flytur til landsins vegna þessa verkefnis, uppskipun á Reyðarfirði og tollafgreiðslu. Einnig er gert ráð fyrir að Samskip sjái um stærstan hluta af akstri á þessum varningi frá Reyðarfirði að athafnasvæði Fosskrafts innst í Fljótsdal, þar sem stöðvarhúsið mun rísa. Samningstíminn er næstu 4 ár, eða til loka 2007. Nákvæmar upplýsingar um heildarmagn flutninganna liggja ekki fyrir á þessari stundu en áætlanir gera ráð fyrir að um a.m.k. 10 þúsund flutningseiningar (freighttons) verði að ræða.
Fosskraft sf. er í eigu fjögurra fyrirtækja: E.Phil & Sön í Danmörku, Hochtief í Þýskalandi, Íslenskra aðalverktaka hf. og Ístaks hf.
Fyrsta vörusendingin með Samskipum fyrir Fosskraft kom til landsins 3. október s.l. þegar leiguskipið Scharhörn losaði á Reyðarfirði. Annað leiguskip, Westerland, lestaði í Rotterdam í síðustu viku og er væntanlegt á Reyðarfjörð nú í vikunni. Í þessum tveim fyrstu ferðum koma ýmsar vélar og tæki s.s. steypubílar, jarðýta, malarflutningavagnar, kranar og borvagn.
Frá undirritun samnings Samskipa og Fosskrafts sf. Sitjandi við borðið eru f.v. Jónas Jónmundsson, Fosskraft sf., Hermann Sigurðsson, aðstoðarstaðarstjóri hjá Fosskraft sf. og Óskar Már Ásmundsson, sölustjóri innflutningsdeildar Samskipa. Á bakvið þá standa Ólafur Matthíasson, Samskipum og Hans Dieter Imhof, frá Fosskraft sf.

