Samskip - Fréttir
Vörumiðstöð

Vörustjórnunarkostnaður

21.10.2003

Á vefsíðu mbl.is í dag (20.október) er grein um vörustjórnunarkostnað.  Í greininni kemur m.a. fram að Samtök verslunar og þjónustu, ásamt fleiri samtökum,  fengu IMG Deloitte og Byggðarannsóknastofnun Íslands til að gera úttekt á vörustjórnunarkostnaði á Íslandi. 

Niðurstöðurnar benda ótvírætt til að hægt sé að spara umtalsverðar upphæðir með hagræðingu í birgðahaldi. Einnig er sagt frá að vörustjórnunarkostnaður sé lægri hjá þeim sem nýta sér vöruhúsaþjónustu hjá þriðja aðila en hjá samsvarandi fyrirtækjum sem annast allt sitt birgðahald sjálf.

Þetta er í samræmi við niðurstöður úr athugunum sem Samskip hafa gert í tengslum við byggingu nýrrar Vörumiðstöðvar og styrkir jafnframt rækilega  þær viðskiptaáætlanir sem gerðar hafa verið.Án efa verður auðveldara að selja þessa þjónustu þegar svo góðar rannsóknir eru til staðar.Samskip hafa boðið viðskiptavinum sínum vöruhúsaþjónustu frá árinu 1993 og því öðlast mjög góða reynslu á þessu sviði.

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica