Samskip - Fréttir
Undirskrift við Stálskip
Samskip annast alla flutninga fyrir Stálskip í Hafnarfirði
Samskip og útgerðarfyrirtækið Stálskip ehf. í Hafnarfirði hafa gert með sér samning um að Samskip sjái um alla flutninga á afla frystitogara Stálskipa á markað í Evrópu, Asíu og Bandaríkjunum.
Samningurinn er til tveggja ára og er áætlað flutningsmagn er um 4-5 þúsund tonn á ári af frystum afurðum togaranna Ránar HF 42, og Þórs HF 40 sem Stálskip gera út.
Eigendur Stálskipa ehf. eru hjónin Guðrún Lárusdóttir, framkvæmdastjóri og Ágúst Sigurðsson, útgerðarstjóri, sem undirritaði samninginn fyrir hönd Stálskipa ásamt Hinrik Bjarnasyni, deildarstjóra útflutnings hjá Samskipum.

